[ÖRFÍ]Fræðsluerindi á Keldum: Lagsjár og rannsóknir: Hvernig nota má lagsjá (confocal microscope) til myndgreiningar og gagnavinnslu.
Birkir Þór
birkirbr at hi.is
Wed Nov 16 09:08:43 GMT 2016
Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og
hópa, til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að
Keldum. Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar
til ykkar fólks.
*
*
*Fræðsluerindi á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.*
Fyrirlesari:*Sævar Ingþórsson*, sérfræðingur við Lífvísindasetur HÍ. **
Heiti erindis:***Lagsjár og rannsóknir: Hvernig nota má lagsjá (confocal
microscope) til myndgreiningar og gagnavinnslu.*
**
Erindið verður haldið _fimmtudaginn 17. nóvember _kl. 12:20, í bókasafni
Tilraunastöðvarinnar.
Á undanförnum áratugum hefur smásjártækninni fleygt fram á undraverðum
hraða, og eru notkunarmöguleikar smásjáa af hinum ýmsu gerðum orðnir
nánast ótæmandi. Lífvísindasetur Háskóla Íslands keypti fyrir tveimur
árum lagsjá (á ensku confocal microscope) sem hefur valdið byltingu í
þeim aðferðum sem vísindamenn innan háskólans hafa nýtt sér til hins
ítrasta. Í þessari kynningu mun lagsjáin verða kynnt og þeir möguleikar
sem hún býður upp á verða ræddir. Ennfremur verður farið yfir hvernig má
vinna töluleg gögn úr þeim myndum sem smájáin gefur rannsakandanum. Að
lokum verður farið yfir þá þróun sem hefur átt sér stað á sviði
smásjártækni á undanförnum árum, og möguleikar til stækkunar og frekari
uppbyggingar ræddir.
_______________________________________________________________
Birkir Þór Bragason
Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20161116/9692ee6c/attachment-0001.html>
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: Bor?i ?slenskur - JPEG format_ed.jpg
Type: image/jpeg
Size: 19012 bytes
Desc: not available
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20161116/9692ee6c/attachment-0001.jpg>
More information about the Gerlanet
mailing list