[ÖRFÍ]Fræðsluerindi á Keldum: Hrognkelsaeldi Hafrannsóknastofnunar
Birkir Þór
birkirbr at hi.is
Mon Apr 25 09:22:48 GMT 2016
Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og
hópa, til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að
Keldum. Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar
til ykkar fólks.
**
*
Fræðsluerindi á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.*
Fyrirlesari:*Agnar Steinarson, *sérfræðingur á Tilraunaeldisstöð
Hafrannsóknastofnunar á Stað við Grindavík.**
**
Heiti erindis:*Hrognkelsaeldi Hafrannsóknastofnunar*
**
Erindið verður haldið _fimmtudaginn 28. apríl kl. 12:20_, í bókasafni
Tilraunastöðvarinnar.
Laxeldi er orðin mikilvæg atvinnugrein víða um heim og heimsframleiðslan
á eldislaxi er nú í kringum tvær milljónir tonna. Það sem stendur
frekari vexti greinarinnar helst fyrir þrifum er fyrst og fremst
laxalúsin. Lúsin veldur gríðarmiklu tjóni í eldinu og er jafnframt ógn
við lífríki og villta stofna. Eldislaxinn hefur verið baðaður upp úr
sterkum hreinsiefnum en það er mjög kostnaðarsamt og hefur neikvæð áhrif
á bæði umhverfið og ímynd laxins í augum neytenda. Vistvænna er að beita
lífrænum vörnum með því að setja sérstaka hreinsifiska í eldiskvíarnar
þeir éta frísyndandi lús og einnig lús beint af laxinum. Í Noregi og
víðar hafa menn um árabil notað varafisk (Labrus bergylta) sem
hreinsifisk en framboðið á þeim er takmarkað og einnig hentar hann illa
á köldum svæðum.
Tilraunir þar sem hrognkelsið (Cyclopterus lumpus) er nýtt sem lúsaæta
hafa gefið góðan árangur og eldi á hrognkelsaseiðum til lúsahreinsunar
eykst nú hröðum skrefum í Noregi. Í Færeyjum er laxeldið
undirstöðuatvinnuvegur og þar er laxalúsin að verða gríðarlegt vandamál.
Færeyingar hafa horft til þess að nota hreinsifisk í baráttu gegn
lúsinni en erfiðlega hefur gengið að ala hrognkelsaseiði og varafiskur
er ekki til staðar í sjó við eyjarnar. Vegna sjúkdómahættu er ekki
leyfilegt að flytja lifandi fisk frá Noregi til Færeyja hins vegar er
leyfilegt að flytja fisk frá Íslandi til Færeyja.
Árið 2014 gerði Hafrannsóknastofnun samning við færeyskt
laxeldisfyrirtæki um tilraunaframleiðslu og flutning á lifandi
hrognkelsaseiðum til Færeyja. Þrátt fyrir ýmsa byrjunarörðugleika tókst
að afhenda mikið magn af seiðum og hrognkelsin stóðu sig vonum framar
við lúsaátið. Árið 2015 hélt seiðaframleiðslan áfram en jafnframt var
villtur klakfiskur tekinn í eldisstöðina að sumri til hrognaframleiðslu
og sölu. Við reglubundið eftirlit greindist veirusjúkdómurinn veirublæði
(VHS) í klakfiskinum og í kjölfarið var ákveðið að farga öllum
hrognkelsum í stöðinni. Ekki varð þó vart við sjúkdóminn í seiðum sem
þegar höfðu verið seld til Færeyja. Hins vegar urðu mjög mikil afföll af
seiðum vegna þrálátrar Flexibacter-sýkingar sem einnig var rakin til
hins villta klakfisks.
Hafrannsóknastofnun hefur jafnframt selt hrogn og seiði og unnið að
yfirfærslu þekkingar tillaxeldisfyrirtækisins Stofnfisks hf sem hefur
tekið eldisstöð sína í Höfnum á Reykjanesi alfarið undir hrognkelsaeldi.
Hrognaöflun byggir alfarið á villtum klakfiski sem er alinn í sóttkví í
einangrunarstöðinni í Sandgerði. Hafrannsóknastofnun hefur fengið leyfi
til áframhaldandi seiðaframleiðslu og hefur nú á vormánuðum fengið hrogn
frá Stofnfiski.
Í þessum fyrirlestri verður fjallað um hrognkelsaeldi
Hafrannsóknastofnunar í máli og myndum, allt frá kreistingu og frjóvgun
hrogna fram að útsetningu í sjókvíar í Færeyjum. Fjallað verður
stuttlega um laxalúsafaraldurinn og frammistöðu hrognkelsanna við
lúsaátið. Einnig verður fjallað stuttlega um þá sjúkdóma sem upp hafa
komið í
eldinu._______________________________________________________________
Birkir Þór Bragason
Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20160425/c3e7d615/attachment-0001.html>
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: Bor?i ?slenskur - JPEG format_ed.jpg
Type: image/jpeg
Size: 19012 bytes
Desc: not available
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20160425/c3e7d615/attachment-0001.jpg>
More information about the Gerlanet
mailing list