[ÖRFÍ]Fræðsluerindi á Keldum: Þang-lífmassaver, draumur í dós?

Birkir Þór birkirbr at hi.is
Mon Apr 11 08:39:58 GMT 2016



Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og 
hópa, til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að 
Keldum. Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar 
til ykkar fólks.

*
Fræðsluerindi á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.*

Fyrirlesari:*Bryndís Björnsdóttir, *verekfnastjóri hjá Matís.**

**

Heiti erindis:*Þang-lífmassaver, draumur í dós?*

**

Erindið verður haldið _fimmtudaginn 14. apríl kl. 12:20_, í bókasafni 
Tilraunastöðvarinnar.

Á Íslandi er þang vannýttur lífmassi sem nota má á sjálfbæran hátt til 
ýmiskonar verðmætasköpunar. Þang er fljótsprottinn lífmassi með hátt 
sykruhlutfall og hentar vel til notkunar í lífmassaverum 
(biorefineries). Í lífmassaverum geta örverur nýtt þang sem orkugjafa 
til framleiðslu verðmætra lífefna og líforku (bioconversion). Í þangi 
finnast þó óhefðbundar sykrur sem ekki eru nýttar af hefðbundnum 
iðnaðarörverum. Sagt verður frá verkefnum sem unnið hefur verið að á 
undanförnum árum hjá Matís, að þróun ferils þar sem nýtt eru einstök 
hitakær ensím og örverur sem eiga uppruna sinn í íslenskum 
jarðhitasvæðum til niðurbrots og vaxtar á þangsykrum og myndunar 
verðmætra afurða.

_______________________________________________________________

Birkir Þór Bragason

Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum


-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20160411/aabd5b70/attachment-0001.html>
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: Bor?i ?slenskur - JPEG format_ed.jpg
Type: image/jpeg
Size: 19012 bytes
Desc: not available
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20160411/aabd5b70/attachment-0001.jpg>


More information about the Gerlanet mailing list