[ÖRFÍ]Fræðsluerindi á Keldum: DNA viðgerðir og Nóbelsverðlaunin í efnafræði árið 2015.

Birkir Þór birkirbr at hi.is
Thu Oct 15 09:46:05 GMT 2015



Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og 
hópa, til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að 
Keldum. Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar 
til ykkar fólks.
*

Fræðsluerindi á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.

*Fyrirlesari: *Sigurður Ingvarsson*, prófessor og forstöðumaður á Keldum.

Heiti erindis: *DNA viðgerðir og Nóbelsverðlaunin í efnafræði árið 2015.

*Erindið verður haldið _fimmtudaginn 22. október kl. 12:20_, í bókasafni 
Tilraunastöðvarinnar.

DNA geymir erfðaupplýsingar, sem með eftirmyndun berast til dótturfruma 
við frumuskiptingar og milli kynslóða við tímgun. Því er mikilvægt að 
DNA sé stöðug sameind og taki ekki miklum breytingum, samt sem áður eru 
breytingar á erfðaefni forsenda þess fjölbreytileika sem náttúruval 
byggir á. Efnafræðilegar breytingar geta orðið á DNA, einnig villur sem 
verða við eftirmyndun þess. Frumur búa við viðgerðakerfi til að halda 
þessum breytingum í lágmarki. Í dag er mikið vitað um sameindalíffræði 
DNA viðgerða. Tomas Lindahl, Paul Modrich og Aziz Sancar hljóta 
Nóbelsverðlaunin í efnafræði árið 2015 fyrir uppgötvanir á lykilferlum í 
DNA viðgerðum. Þeir viðgerðarferlar sem um er að ræða eru 
basaútskurðarviðgerðir, kirnisútskurðarviðgerðir og mispörunarviðgerðir. 
Í erindinu verður farið yfir helsu tímamótaskref í rannsóknum 
verðlaunahafanna. Einnig verður fjallað almennt um DNA viðgerðaferla og 
mikilvægi þessarar nýju þekkingar varðandi skilning og meðferð á sjúkdómum.
*
___________________________________________________________
*Birkir Þór Bragason
Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum*
*
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20151015/0c9a1956/attachment-0001.html>
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: Bor?i ?slenskur - JPEG format_ed.jpg
Type: image/jpeg
Size: 19012 bytes
Desc: not available
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20151015/0c9a1956/attachment-0001.jpg>


More information about the Gerlanet mailing list