<html>
<head>
<meta http-equiv="content-type" content="text/html; charset=utf-8">
</head>
<body bgcolor="#FFFFFF" text="#000000">
<img alt="" src="cid:part1.06060008.06050903@hi.is" height="82"
width="709"><br>
<br>
<font color="#ff6600">Þessi póstur er sendur tengiliðum við
stofnanir, fyrirtæki, félög og hópa, til að kynna fræðsluerindi
sem haldin eru á Tilraunastöðinni að Keldum. Vinsamlegast
áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar til ykkar
fólks.</font><br>
<font size="-1" face="Times New Roman, Times, serif"><b
style="mso-bidi-font-weight:normal"><span
style="mso-ansi-language:IS"><br>
<br>
Fræðsluerindi á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að
Keldum.<br>
<br>
</span></b></font><font size="-1" face="Times New Roman, Times,
serif"><span style="mso-ansi-language:IS">Fyrirlesari: <b>Sigurður
Ingvarsson</b>, prófessor og forstöðumaður á Keldum.<br>
<br>
Heiti erindis: <b>DNA viðgerðir og Nóbelsverðlaunin í efnafræði
árið 2015.<br>
<br>
</b>Erindið verður haldið <u>fimmtudaginn 22. október kl. 12:20</u>,
í bókasafni Tilraunastöðvarinnar. <br>
<br>
DNA geymir erfðaupplýsingar, sem með eftirmyndun berast til
dótturfruma við frumuskiptingar og milli kynslóða við tímgun.
Því er mikilvægt að DNA sé stöðug sameind og taki ekki miklum
breytingum, samt sem áður eru breytingar á erfðaefni forsenda
þess fjölbreytileika sem náttúruval byggir á. Efnafræðilegar
breytingar geta orðið á DNA, einnig villur sem verða við
eftirmyndun þess. Frumur búa við viðgerðakerfi til að halda
þessum breytingum í lágmarki. Í dag er mikið vitað um
sameindalíffræði DNA viðgerða. Tomas Lindahl, Paul Modrich og
Aziz Sancar hljóta Nóbelsverðlaunin í efnafræði árið 2015 fyrir
uppgötvanir á lykilferlum í DNA viðgerðum. Þeir viðgerðarferlar
sem um er að ræða eru basaútskurðarviðgerðir,
kirnisútskurðarviðgerðir og mispörunarviðgerðir. Í erindinu
verður farið yfir helsu tímamótaskref í rannsóknum
verðlaunahafanna. Einnig verður fjallað almennt um DNA
viðgerðaferla og mikilvægi þessarar nýju þekkingar varðandi
skilning og meðferð á sjúkdómum.<br>
<b><br>
___________________________________________________________<br>
</b><font size="-2">Birkir Þór Bragason<br>
Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum</font><b><br>
</b></span></font> <br>
</body>
</html>