[ÖRFÍ]Fræðslufundur MAST um snertiefni matvæla (umbúðir og tæki sem snerta eiga matvæli)
Hjalti Andrason
hjalti.andrason at mast.is
Fri Mar 27 16:38:04 GMT 2015
Matvælastofnun heldur fræðslufund fyrir framleiðendur og sölu- og
dreifingaraðila efna og hluta sem ætlað er að komast í snertingu við
matvæli þriðjudaginn 14. apríl kl. 14:00-15:30. Á fundinum verður fjallað
um þær reglur sem gilda um efni og hluti sem ætlað er að snerta matvæli,
sér í lagi efni og hluti úr plasti.
Skráning á fundinn fer fram á netfanginu skraning at mast.is fyrir 13. apríl
og er fundurinn þátttakendum að kostnaðarlausu. Vinsamlega dreifið þessu
fundarboði til þeirra sem málið varðar innan ykkar stofnunar/samtaka.
Þátttekendur eru beðnir um að taka fram nafn, heiti fyrirtækis og netfang
við skráningu.
Flest matvæli komast í snertingu við efni og hluti á meðan á framleiðslu
og sölu þeirra stendur. Snertingin getur verið við framleiðslubúnað,
vinnslutæki, umbúðir, áhöld o.fl. og geta þessi snertiefni verið uppruni
mengunar í matvælum. Öll efni og allir hlutir sem eru í snertingu við
matvæli eða er ætlað að komast í snertingu við matvæli þurfa að uppfylla
reglur um snertiefni matvæla. Innra eftirlit fyrirtækja, hvort sem er
framleiðenda, dreifingaraðila eða matvælafyrirtækja sem nota vörurnar,
skal koma í veg fyrir að mengun frá efnum og hlutum berist í matvæli. Á
fundinum verða helstu reglur sem gilda um matvælasnertiefni kynntar og
gerð grein fyrir megin kröfum sem gerðar eru til framleiðenda,
innflytjenda og dreifingaraðila plasts.
Fyrirlesari er Katrín Guðjónsdóttir, sérfræðingur hjá Matvælastofnun.
Fræðslufundurinn verður haldinn í umdæmisskrifstofu Matvælastofnunar í
Reykjavík að Stórhöfða 23. Gengið er inn í húsnæði MAST að norðanverðu
(Grafarvogsmegin). Allir velkomnir!
Með kveðju,
Hjalti Andrason
Fræðslustjóri / Head of Information and Communication
Rekstrar- og mannauðssvið / Office of Administration
_____________________________________ _______
Matvælastofnun / Icelandic Food And Veterinary Authority
Austurvegur 64 – 800 Selfoss – Iceland
Sími/tel: (+354) 530 4800 – Fax : (+354) 530 4801 – www.mast.is
_____________________________________ _______
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20150327/b210a1cd/attachment-0001.html>
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 19073 bytes
Desc: not available
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20150327/b210a1cd/attachment-0001.jpe>
More information about the Gerlanet
mailing list