Matvælastofnun heldur fræðslufund fyrir
framleiðendur og sölu- og dreifingaraðila efna og hluta sem ætlað er að
komast í snertingu við matvæli þriðjudaginn 14. apríl kl. 14:00-15:30.
Á fundinum verður fjallað um þær reglur sem gilda um efni og hluti sem
ætlað er að snerta matvæli, sér í lagi efni og hluti úr plasti.

Skráning á fundinn fer fram á netfanginu
skraning@mast.is fyrir 13. apríl og er fundurinn þátttakendum
að kostnaðarlausu. Vinsamlega dreifið þessu fundarboði til þeirra sem málið
varðar innan ykkar stofnunar/samtaka. Þátttekendur eru beðnir um að taka
fram nafn, heiti fyrirtækis og netfang við skráningu.

Flest matvæli komast í snertingu við
efni og hluti á meðan á framleiðslu og sölu þeirra stendur. Snertingin
getur verið við framleiðslubúnað, vinnslutæki, umbúðir, áhöld o.fl. og
geta þessi snertiefni verið uppruni mengunar í matvælum. Öll efni og allir
hlutir sem eru í snertingu við matvæli eða er ætlað að komast í snertingu
við matvæli þurfa að uppfylla reglur um snertiefni matvæla. Innra eftirlit
fyrirtækja, hvort sem er framleiðenda, dreifingaraðila eða matvælafyrirtækja
sem nota vörurnar, skal koma í veg fyrir að mengun frá efnum og hlutum
berist í matvæli. Á fundinum verða helstu reglur sem gilda um matvælasnertiefni
kynntar og gerð grein fyrir megin kröfum sem gerðar eru til framleiðenda,
innflytjenda og dreifingaraðila plasts.

Fyrirlesari er Katrín Guðjónsdóttir,
sérfræðingur hjá Matvælastofnun.

Fræðslufundurinn verður haldinn í umdæmisskrifstofu
Matvælastofnunar í Reykjavík að Stórhöfða 23. Gengið er inn í húsnæði MAST
að norðanverðu (Grafarvogsmegin). Allir velkomnir!

Með kveðju,

Hjalti Andrason

Fræðslustjóri / Head of Information and Communication

Rekstrar- og mannauðssvið / Office of Administration

Matvælastofnun / Icelandic Food
And Veterinary Authority

Austurvegur 64 – 800 Selfoss – Iceland

Sími/tel: (+354) 530 4800 – Fax : (+354) 530 4801 – www.mast.is