[ÖRFÍ]Fræðslufundur MAST: Snertiefni matvæla

Hjalti Andrason hjalti.andrason at mast.is
Mon Nov 24 12:48:24 GMT 2014


Vinsamlega dreifið innan ykkar samtaka/fyrirtækis:

Matvælastofnun heldur fræðslufund um efni og hluti í snertingu við matvæli 
þriðjudaginn 2. desember kl. 14:00 - 15:30. Á fundinum verður fjallað um 
þær reglur sem gilda um snertiefni matvæla og þær körfur sem gerðar eru 
til matvælafyrirtækja.

Flest matvæli komast í snertingu við efni og hluti á meðan á framleiðslu 
og sölu þeirra stendur. Snertingin getur verið við framleiðslubúnað, 
vinnslutæki, umbúðir, áhöld o.fl. og geta þessi snertiefni verið uppruni 
mengunar í matvælum. Öll efni og allir hlutir sem eru í snertingu við 
matvæli eða er ætlað að komast í snertingu við matvæli þurfa að uppfylla 
reglur um snertiefni matvæla. Innra eftirlit fyrirtækja, hvort sem er 
framleiðenda, dreifingaraðila eða matvælafyrirtækja sem nota vörurnar, 
skal koma í veg fyrir að mengun frá efnum og hlutum berist í matvæli. Á 
fundinum verða helstu reglur sem gilda um matvælasnertiefni kynntar og 
gerð grein fyrir megin kröfum sem gerðar eru til framleiðenda, 
innflytjenda og matvælafyrirtækja varðandi matvælasnertiefni.

Fyrirlesari er Katrín Guðjónsdóttir, sérfræðingur hjá Matvælastofnun.

Hægt verður að fylgjast með fræðslufundinum í beinni útsendingu á vef MAST 
undir Útgáfa - Fræðslufundir. Þar verður einnig birt upptaka að 
fræðslufundi loknum.

Fræðslufundurinn verður haldinn í umdæmisskrifstofu Matvælastofnunar í 
Reykjavík að Stórhöfða 23. Gengið er inn í húsnæði MAST að norðanverðu 
(Grafarvogsmegin). Allir velkomnir!

http://www.mast.is/frettaflokkar/frett/2014/11/24/Fraedslufundur-Snertiefni-matvaela/

Með kveðju,

Hjalti Andrason

Fræðslustjóri / Head of Information and Communication
Rekstrar- og mannauðssvið / Office of Administration
_____________________________________ _______ 

Matvælastofnun / Icelandic Food And Veterinary Authority 
Austurvegur 64 – 800 Selfoss – Iceland
Sími/tel: (+354) 530 4800 – Fax : (+354) 530 4801 – www.mast.is 
_____________________________________ _______

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20141124/169367d2/attachment-0001.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 19073 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20141124/169367d2/attachment-0001.jpe 


More information about the Gerlanet mailing list