[ÖRFÍ]Fræðsluerindi á Keldum: Klukkuþreyta meðal Íslendinga.

Birkir Þór birkirbr at hi.is
Wed Nov 19 13:33:07 GMT 2014



_Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og 
hópa, til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að 
Keldum. Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar 
til ykkar fólks._

*
Fræðsluerindi á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.*

Fyrirlesari:*Björg Þorleifsdóttir**, *lektor við Læknadeild Háskóla 
Íslands.**

**

Heiti erindis:*Klukkuþreyta meðal Íslendinga.*

**

Erindið verður haldið _fimmtudaginn 27. nóvember kl. 12:20_, í bókasafni 
Tilraunastöðvarinnar.

Tímasetning svefns og vöku innan sólarhrings ákvarðast af lífklukkunni 
sem er stillt af sólarljósinu, en aðrir þættir sem taka mið af 
staðarklukku hafa einnig áhrif. Misræmi milli sólar- og staðartíma 
stuðlar að því að lífklukkan gengur ekki í takt við staðartíma. Of fljót 
staðarklukka stuðlar að seinkun háttatíma og afleiðingin er sú að á 
vinnudögum sérstaklega, þegar fótaferðartíminn er fastur, styttist 
svefntíminn. Fjölmargar rannsóknir sýna sterk tengsl milli skerts svefns 
og margháttaðra heilsufarsvandamála.

Í nær hálfa öld hefur klukkan á Íslandi verið stillt einni klukkustund á 
undan sólarklukku. Merki eru um að þetta valdi klukkuþreytu (social 
jetlag) meðal þjóðarinnar.

_______________________________________________________________

Birkir Þór Bragason

Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum


-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20141119/29ec6db4/attachment-0001.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: Bor?i ?slenskur - JPEG format_ed.jpg
Type: image/jpeg
Size: 19012 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20141119/29ec6db4/attachment-0001.jpg 


More information about the Gerlanet mailing list