[ÖRFÍ]Fræðsluerindi á Keldum: Býflugur, erfðir og örlög.
Birkir Þór Bragason
birkirbr at hi.is
Mon Nov 25 10:11:20 GMT 2013
_Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og
hópa, til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að
Keldum. Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar
til ykkar fólks. _
**
*Fræðsluerindi á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.*
Fyrirlesari: *Ástríður Pálsdóttir*, vísindamaður á Keldum.
Heiti erindis: *Býflugur, erfðir og örlög.*
Erindið verður haldið *_fimmtudaginn 28. nóvember kl. 12:20_*, í
bókasafni Tilraunastöðvarinnar.
Í nokkur ár hafa býflugur verið ræktaðar á Íslandi með góðum árangri
eftir erfiða byrjun. Aðallega var erfitt að láta bú lifa af veturna.
Eftirlit er með innflutningi og býbændur verða að fara á námskeið enda
krefst býflugnarækt natni. Félag býflugnaræktanda heldur uppi öflugri
fræðslu og samhjálp. Býflugur eru fluttar inn árlega frá Álandseyjum en
þar eru þær lausar við versta sníkjudýrið, varróa-maurinn, og eru
sérlega geðprúðar að auki. Í fyrirlestrinum mun Ástríður Pálsdóttir fara
yfir helstu atriði í líffræði býflugna, uppbyggingu búa og segja frá
eigin reynslu og einnig fjalla um drottingarhunang (royal jelly) og
hvernig það breytir lirfu í drottningu með stjórn á genastarfsemi.
_______________________________________________________________
Birkir Þór Bragason
Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20131125/cd376a63/attachment-0001.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: Bor?i ?slenskur - JPEG format_ed.jpg
Type: image/jpeg
Size: 19012 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20131125/cd376a63/attachment-0001.jpg
More information about the Gerlanet
mailing list