[ÖRFÍ]Frestun: Fræðsluerindi á Keldum: Býflugur, erfðir og örlög.

Birkir Þór Bragason birkirbr at hi.is
Wed Nov 20 14:32:32 GMT 2013



_Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og 
hópa, til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að 
Keldum. _


ATH. Fræðsluerindi Ástríðar Pálsdóttur: *Býflugur, erfðir og örlög*, sem 
halda átti á morgun _*21. nóvember*_, hefur verið frestað vegna veikinda 
fyrirlesarans.

Ný dagsetning verður auglýst síðar.



_Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og 
hópa, til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að 
Keldum. Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar 
til ykkar fólks. _

*Fræðsluerindi á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.*

Fyrirlesari:***Ástríður Pálsdóttir, *vísindamaður á Keldum.

**

Heiti erindis:***Býflugur, erfðir og örlög.*

**

Erindið verður haldið _fimmtudaginn 21. nóvember kl. 12:20_, í bókasafni 
Tilraunastöðvarinnar.

Í nokkur ár hafa býflugur verið ræktaðar á Íslandi með góðum árangri 
eftir erfiða byrjun. Aðallega var erfitt að láta bú lifa af veturna. 
Eftirlit er með innflutningi og býbændur verða að fara á námskeið enda 
krefst býflugnarækt natni. Félag býflugnaræktanda heldur uppi öflugri 
fræðslu og samhjálp. Býflugur eru fluttar inn árlega frá Álandseyjum en 
þar eru þær lausar við versta sníkjudýrið, varróa-maurinn, og eru 
sérlega geðprúðar að auki. Í fyrirlestrinum mun Ástríður Pálsdóttir fara 
yfir helstu atriði í líffræði býflugna, uppbyggingu búa og segja frá 
eigin reynslu og einnig fjalla um drottingarhunang (royal jelly) og 
hvernig það breytir lirfu í drottningu með stjórn á genastarfsemi.

_______________________________________________________________

Birkir Þór Bragason

Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum


-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20131120/4de9a8cc/attachment-0001.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 19012 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20131120/4de9a8cc/attachment-0001.jpe 


More information about the Gerlanet mailing list