[ÖRFÍ]Fræðsluerindi á Keldum. Ólafur Andrésson. Erfðamengi samlífis: Hvað býr hið innra með fléttum?

Sigurður H. Richter shr at hi.is
Tue Feb 21 09:24:30 GMT 2012



Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og hópa,
til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að Keldum.
Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar til ykkar
fólks.

 

Fræðsluerindi á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.

 

Fyrirlesari: Ólafur Andrésson, prófessor við líf- og umhverfisvísindadeild
Háskóla Íslands.

Heiti erindis:  Erfðamengi samlífis: Hvað býr hið innra með fléttum?

 

Erindið verður haldið fimmtudaginn 23. febrúar kl. 12:20, í bókasafni
Tilraunastöðvarinnar. 

 

Enda þótt fléttur séu víða áberandi og hafi mikla þýðingu í mörgum
vistkerfum auk þess að vera sérlega áhugaverðar þróunarfræðilega, þá hefur
enn ekkert erfðamengi fléttu verið birt. Við erum því í ákjósanlegri aðstöðu
til að vinna ítarlega lýsingu á erfðamengi, umritamengi og próteinmengi
fléttusamlífis. Í heild munu þessar upplýsingar veita djúpan og margbrotinn
skilning á fléttusamlífi og þróun þess og leggja grunn fyrir frekari
rannsóknir, svo sem á efnaskiptamengi, efnaflæði, smíði kerfislíkana og
prófun þeirra. Auk þess gefast tækifæri til að greina ný efni og hvernig þau
eru framleidd. 

Efniviður rannsóknanna er himnuskóf (Peltigera membranacea) sem safnað er í
Keldnagili. Gerð verður stutt grein fyrir hvernig erfðamengi fléttunnar og
umritunarmengi (mRNA) hafa verið raðgreind og hvers konar ályktanir má draga
af því, m.a. um eðli samlífisins. Einnig verður gerð grein fyrir óvenjulegu
efni sem fundist hefur í fléttunni.

 

_______________________________________________________________

 

Sigurður H. Richter

Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum

Sími 896 5811

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20120221/534101e9/attachment.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 7619 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20120221/534101e9/attachment.jpe 


More information about the Gerlanet mailing list