[ÖRFÍ]Fræðsluerindi á Keldum. Sigurður Snorrason. Þroskunarfræðilegur grunnur afbrigðamyndunar bleikju.

Sigurður H. Richter shr at hi.is
Mon Feb 6 13:29:47 GMT 2012



Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og hópa,
til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að Keldum.
Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar til ykkar
fólks.

 

Fræðsluerindi á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.

 

Fyrirlesari: Sigurður Snorrason, prófessor við líf- og umhverfisvísindadeild
Háskóla Íslands.

Heiti erindis: Þroskunarfræðilegur grunnur afbrigðamyndunar bleikju.

 

Erindið verður haldið fimmtudaginn 9. febrúar kl. 12:20, í bókasafni
Tilraunastöðvarinnar. 

 

Í íslenskum vötnum hafa forvitnileg afbrigði bleikju ítrekað myndast frá
lokum síðustu ísaldar. Ferlin virðast tengd skilyrðum á hverjum stað. Þannig
hafa orðið til fjölmargir dvergbleikjustofnar í lindum og í stöðuvötnum má
oft finna tvö afbrigði eða fleiri sem nýta mismunandi búsvæði.
Svipfarsbreytileiki sá sem afbrigðin markast af er að þónokkru leyti tengdur
erfðum og því blasir við að spyrja hvaða gen eða genakerfi það eru sem
liggja til grundvallar. Rannsóknir þær sem kynntar verða í fyrirlestrinum
miða að því að kanna tengsl milli náttúrulegs breytileika í beinum og vöðvum
og mismunar í tjáningu gena milli afbrigða á mismunandi stigum
þroskaferilsins. Aukinn skilningur á þessum tengslum mun varpa nýju ljósi á
gangvirki aðlögunar og afbrigðamyndunar.

 

_______________________________________________________________

 

Sigurður H. Richter

Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum

Sími 896 5811

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20120206/4a7d90eb/attachment.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 7619 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20120206/4a7d90eb/attachment.jpe 


More information about the Gerlanet mailing list