[ÖRFÍ]Fræðslufundur MAST: Eftirlit með áburði og kadmíum
Hjalti Andrason
hjalti.andrason at mast.is
Thu Feb 2 13:26:49 GMT 2012
FRÆÐSLUFUNDUR: EFTIRLIT MEÐ ÁBURÐI OG KADMÍUM
Matvælastofnun, í samstarfi við Landbúnaðarháskóla Íslands og Matís,
heldur fræðslufund um eftirlit með áburði miðvikudaginn 8. febrúar 2011
kl. 15:00-16:30 á Stórhöfða 23. Á fundinum verður fjallað um framkvæmd
áburðareftirlits hérlendis, kadmíum og uppsöfnun þungmálmsins í jarðvegi
og landbúnaði, ásamt mögulegum áhrifum þess á lýðheilsu.
Mikil umræða um áburð hófst í byrjun árs í kjölfar birtingu
Matvælastofnunar á skýrslu um niðurstöður áburðareftirlits á síðasta ári.
Sýnatökur stofnunarinnar leiddu í ljós að áburður frá Skeljungi innihélt
tvöfalt til þrefalt meira magn af kadmíum en leyfilegt er hér á landi. Í
kjölfarið hófst áköf umfjöllun um kadmíum þar sem gagnrýni á eftirlitið
var óvægin.
Á fræðslufundinum verður fjallað um áburðarnotkun og framkvæmd
áburðareftirlits hérlendis. Rætt verður um kadmíummálið svokallaða,
birtingu eftirlitsniðurstaðna og nýjar reglur sem heimila birtingu
niðurstaðna áburðareftirlits þegar þær liggja fyrir. Uppsöfnun kadmíums í
jarðvegi og upptaka í korn, hey og búfé verða til umfjöllunar, auk
heilsuspillandi áhrifa kadmíums á fólk ef slík uppsöfnun og upptaka á sér
stað.
Hægt verður að fylgjast með fræðslufundinum í beinni útsendingu á vef
Matvælastofnunar undir Útgáfa - Fræðslufundir. Þar verður einnig birt
upptaka að fræðslufundi loknum.
Fyrirlesarar:
Valgeir Bjarnason, sérfræðingur áburðareftirlits hjá Matvælastofnun
Ríkharð Brynjólfsson, prófessor við Landbúnaðarháskóla Íslands
Ólafur Reykdal, verkefnastjóri hjá Matís
Fræðslufundurinn verður haldinn í umdæmisskrifstofu Matvælastofnunar í
Reykjavík að Stórhöfða 23. Gengið er inn í húsnæði stofnunarinnar að
norðanverðu (Grafarvogsmegin). Allir velkomnir!
Með kveðju, / Best regards,
Hjalti Andrason
Fræðslustjóri / Head of Information and Communication
Fræðslu- og upplýsingamál / Information and Communication
______________________________
Austurvegi 64
800 Selfoss
Sími/tel: (+354) 530 4800
Fax : (+354) 530 4801
www.mast.is
Vinsamlegast athugið að þessi tölvupóstur og viðhengi hans eru eingöngu
ætluð þeim sem tölvupósturinn er stílaður á og gætu innihaldið upplýsingar
sem eru trúnaðarmál. Please note that this e–mail and it’s attachments are
intended for the named addressee only and may contain information that is
confidential and privileged.
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20120202/590c539a/attachment.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 5608 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20120202/590c539a/attachment.jpe
More information about the Gerlanet
mailing list