FRÆÐSLUFUNDUR: EFTIRLIT MEÐ ÁBURÐI OG KADMÍUM

Matvælastofnun, í samstarfi við Landbúnaðarháskóla
Íslands og Matís, heldur fræðslufund um eftirlit með áburði miðvikudaginn
8. febrúar 2011 kl. 15:00-16:30 á Stórhöfða 23. Á fundinum verður fjallað
um framkvæmd áburðareftirlits hérlendis, kadmíum og uppsöfnun þungmálmsins
í jarðvegi og landbúnaði, ásamt mögulegum áhrifum þess á lýðheilsu.

Mikil umræða um áburð hófst í byrjun
árs í kjölfar birtingu Matvælastofnunar á skýrslu um niðurstöður áburðareftirlits
á síðasta ári. Sýnatökur stofnunarinnar leiddu í ljós að áburður frá Skeljungi
innihélt tvöfalt til þrefalt meira magn af kadmíum en leyfilegt er hér
á landi. Í kjölfarið hófst áköf umfjöllun um kadmíum þar sem gagnrýni á
eftirlitið var óvægin.

Á fræðslufundinum verður fjallað um
áburðarnotkun og framkvæmd áburðareftirlits hérlendis. Rætt verður um kadmíummálið
svokallaða, birtingu eftirlitsniðurstaðna og nýjar reglur sem heimila birtingu
niðurstaðna áburðareftirlits þegar þær liggja fyrir. Uppsöfnun kadmíums
í jarðvegi og upptaka í korn, hey og búfé verða til umfjöllunar, auk heilsuspillandi
áhrifa kadmíums á fólk ef slík uppsöfnun og upptaka á sér stað.

Hægt verður að fylgjast með fræðslufundinum
í beinni útsendingu á vef Matvælastofnunar undir Útgáfa - Fræðslufundir.
Þar verður einnig birt upptaka að fræðslufundi loknum.

Fyrirlesarar:

Valgeir Bjarnason, sérfræðingur áburðareftirlits
hjá Matvælastofnun

Ríkharð Brynjólfsson, prófessor við
Landbúnaðarháskóla Íslands

Ólafur Reykdal, verkefnastjóri
hjá Matís

Fræðslufundurinn verður haldinn í umdæmisskrifstofu
Matvælastofnunar í Reykjavík að Stórhöfða 23. Gengið er inn í húsnæði stofnunarinnar
að norðanverðu (Grafarvogsmegin). Allir velkomnir!

Með kveðju, / Best regards,

Hjalti Andrason

Fræðslustjóri / Head of Information
and Communication

Fræðslu- og upplýsingamál / Information and Communication

Austurvegi 64

800 Selfoss

Sími/tel: (+354) 530 4800

Fax : (+354) 530 4801

www.mast.is

Vinsamlegast athugið að þessi tölvupóstur
og viðhengi hans eru eingöngu ætluð þeim sem tölvupósturinn er stílaður
á og gætu innihaldið upplýsingar sem eru trúnaðarmál. Please note that
this e–mail and it’s attachments are intended for the named addressee
only and may contain information that is confidential and privileged.