[ÖRFÍ]Fræðslufundur MAST: Nýjar reglur um merkingar matvæla
Hjalti Andrason
hjalti.andrason at mast.is
Wed Nov 30 15:30:00 GMT 2011
Vinsamlega áframsendið til ykkar starfsfólks/meðlima...
Ný reglugerð Evrópusambandsins um merkingar matvæla (food information to
consumers) var birt 22. nóvember s.l. Reglugerðin verður innleidd á
Íslandi á næstu misserum og mun leysa af hólmi núverandi reglugerðir um
merkingu matvæla og merkingu næringargildis matvæla. Matvælastofnun
heldur fræðslufund til að kynna þessar nýju reglur þriðjudaginn 6.
desember 2011 kl. 15:00 - 16:00.
Meðal nýjunga í nýju reglugerðinni er að lágmarksleturstærð er skilgreind.
Skylt verður að næringargildismerkja flest matvæli (orku, fitu og mettaða
fitu, kolvetni, sykur, prótein og salt). Skylt verður að upprunamerkja
kjöt og merkja samsett kjöt sem „mótað kjöt“. Það sama mun eiga við um
óunnar fiskafurðir. Ofnæmis- og óþolsvalda ber að merkja á áberandi hátt
með lita- eða leturbreytingu skv. reglugerðinni. Frestur til að uppfylla
reglurnar í löndun Evrópusambandsins er 3 ár (5 ár fyrir
næringargildismerkingar). Fresturinn rennur trúlega út á sama tíma hér á
landi.
Á fræðslufundinum verður farið yfir helstu ákvæði reglugerðarinnar og
verða breytingar frá núverandi reglum kynntar fyrir framleiðendum og
dreifingaraðilum matvæla, ásamt öðrum áhugasömum.
Hægt verður að fylgjast með fræðslufundinum í beinni útsendingu á vef MAST
undir Útgáfa - Fræðslufundir. Þar verður einnig birt upptaka að
fræðslufundi loknum.
Fyrirlesarar:
Jónína Þ. Stefánsdóttir, fagsviðsstjóri hjá Matvælastofnun
Zulema Sullca Porta, sérfræðingur hjá Matvælastofnun
Fræðslufundurinn verður haldinn í umdæmisskrifstofu Matvælastofnunar í
Reykjavík að Stórhöfða 23. Gengið er inn í húsnæði stofnunarinnar að
norðanverðu (Grafarvogsmegin). Allir velkomnir!
Sjá www.mast.is
Með kveðju, / Best regards,
Hjalti Andrason
Fræðslustjóri / Head of Information and Communication
Fræðslu- og upplýsingamál / Information and Communication
______________________________
Austurvegi 64
800 Selfoss
Sími/tel: (+354) 530 4800
Fax : (+354) 530 4801
www.mast.is
Vinsamlegast athugið að þessi tölvupóstur og viðhengi hans eru eingöngu
ætluð þeim sem tölvupósturinn er stílaður á og gætu innihaldið upplýsingar
sem eru trúnaðarmál. Please note that this e–mail and it’s attachments are
intended for the named addressee only and may contain information that is
confidential and privileged.
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20111130/d45089ea/attachment-0001.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 5608 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20111130/d45089ea/attachment-0001.jpe
More information about the Gerlanet
mailing list