Vinsamlega áframsendið til ykkar starfsfólks/meðlima...

Ný reglugerð Evrópusambandsins um merkingar
matvæla (food information to consumers) var birt 22. nóvember s.l. Reglugerðin
verður innleidd á Íslandi á næstu misserum og mun leysa af hólmi núverandi
reglugerðir um merkingu matvæla og merkingu  næringargildis matvæla.
Matvælastofnun heldur fræðslufund til að kynna þessar nýju reglur þriðjudaginn
6. desember 2011 kl. 15:00 - 16:00.

Meðal nýjunga í nýju reglugerðinni er að lágmarksleturstærð
er skilgreind. Skylt verður að næringargildismerkja flest matvæli (orku,
fitu og mettaða fitu, kolvetni, sykur, prótein og salt). Skylt verður að
upprunamerkja kjöt og merkja samsett kjöt sem „mótað kjöt“. Það sama
mun eiga við um óunnar fiskafurðir. Ofnæmis- og óþolsvalda ber að merkja
á áberandi hátt með lita- eða leturbreytingu skv. reglugerðinni. Frestur
til að uppfylla reglurnar í löndun Evrópusambandsins er 3 ár (5 ár fyrir
næringargildismerkingar). Fresturinn rennur trúlega út á sama tíma hér
á landi.

Á fræðslufundinum verður farið yfir helstu
ákvæði reglugerðarinnar og verða breytingar frá núverandi reglum kynntar
fyrir framleiðendum og dreifingaraðilum matvæla, ásamt öðrum áhugasömum.

Hægt verður að fylgjast með fræðslufundinum í beinni útsendingu á vef MAST
undir Útgáfa - Fræðslufundir. Þar verður einnig birt upptaka að fræðslufundi
loknum.

Fyrirlesarar:

Jónína Þ. Stefánsdóttir,
fagsviðsstjóri hjá Matvælastofnun

Zulema Sullca Porta, sérfræðingur hjá Matvælastofnun

Fræðslufundurinn verður haldinn í umdæmisskrifstofu
Matvælastofnunar í Reykjavík að Stórhöfða 23. Gengið er inn í húsnæði stofnunarinnar
að norðanverðu (Grafarvogsmegin). Allir velkomnir!

Sjá www.mast.is

Með kveðju, / Best regards,

Hjalti Andrason

Fræðslustjóri / Head of Information
and Communication

Fræðslu- og upplýsingamál / Information and Communication

Austurvegi 64

800 Selfoss

Sími/tel: (+354) 530 4800

Fax : (+354) 530 4801

www.mast.is

Vinsamlegast athugið að þessi tölvupóstur
og viðhengi hans eru eingöngu ætluð þeim sem tölvupósturinn er stílaður
á og gætu innihaldið upplýsingar sem eru trúnaðarmál. Please note that
this e–mail and it’s attachments are intended for the named addressee
only and may contain information that is confidential and privileged.