[ÖRFÍ]Fræðsluerindi á Keldum: Lífríki Elliðaánna.
Sigurður H. Richter
shr at hi.is
Mon Nov 21 11:03:00 GMT 2011
Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og hópa,
til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að Keldum.
Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar til ykkar
fólks.
Fræðsluerindi á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.
Fyrirlesari: Þórólfur Antonsson fiskifræðingur. Veiðimálastofnun.
Meðhöfundur: Friðþjófur Árnason liffræðingur. Veiðimálastofnun.
Heiti erindis: Lífríki Elliðaánna.
Erindið verður haldið fimmtudaginn 24. nóvember kl. 12:20, í bókasafni
Tilraunastöðvarinnar.
Elliðaárnar hafa verið ein af lykilám í vöktun á lífríki straumvatna
hérlendis á þriðja áratug. Þar hefur verið fylgst með fiskistofnum
vatnakerfisins, laxi, urriða, bleikju og ál. Mest áhersla hefur verið á
lífsferil laxins þar sem árlega er könnuð útbreiðsla og þéttleiki
seiðaárganga sem og aldur gönguseiða, lengdardreifingu þeirra, holdafar og
endurheimtur úr hafi. Þegar laxinn kemur úr sjó er hann talinn upp í árnar.
Eftir niðursveiflu laxastofnsins árabilið 1997- 2004 hefur hann nú rétt við,
í kjölfar aðgerða sem gripið var til. Árleg sýni af urriða og bleikju í
Elliðavatni veita upplýsingar um framgang þeirra stofna. Tegundasamsetning
og fjöldi smádýra er einnig kannaður árlega. Margar aðrar rannsóknir hafa
tengst þessari vöktun m.a. á fisksjúkdómum.
_______________________________________________________________
Sigurður H. Richter
Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum
Símar 585 5100 og 896 5811
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20111121/15d79d5e/attachment.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 7619 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20111121/15d79d5e/attachment.jpe
More information about the Gerlanet
mailing list