[ÖRFÍ]Fræðsluerindi á Keldum: Ómega-3 fitusýrur - áhrif á bólgu.
Sigurður H. Richter
shr at hi.is
Tue Nov 15 09:33:42 GMT 2011
Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og hópa,
til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að Keldum.
Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar til ykkar
fólks.
Fræðsluerindi á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.
Fyrirlesari: Ingibjörg Harðardóttir prófessor, lífefna- og
sameindalíffræðistofu, Lífvísindasetri læknadeildar HÍ.
Heiti erindis: Ómega-3 fitusýrur - áhrif á bólgu.
Erindið verður haldið fimmtudaginn 17. nóvember, kl. 12:20, í bókasafni
Tilraunastöðvarinnar.
Ómega-3 fitusýrur er helst að finna í hörfræsolíu, feitum fiski og lýsi.
Hlutur þeirra í fæði vesturlandabúa hefur minnkað mikið frá því sem var í
byrjun 20. aldarinnar. Langar fjölómettaðar ómega-3 fitusýrur hafa áhrif á
frumuhimnu, myndun fituboðefna, innanfrumuboðferli og tjáningu gena fyrir
bólgumiðla. Neysla þeirra hefur jákvæð áhrif á ýmsa bólgusjúkdóma og geta
mögulega ýtt undir hjöðnun bólgu.
________________________________________________________________
Sigurður H. Richter
Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum
Símar 585 5100 og 896 5811
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20111115/92cc1f4a/attachment.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 7619 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20111115/92cc1f4a/attachment.jpe
More information about the Gerlanet
mailing list