[Gerlanet] Fræðslufundur á Keldum. Baldur Tumi Baldursson. Sár, meingerð og meðferð með tilliti til stoðefnis úr fiskroði.

Sigurður H. Richter shr at hi.is
Tue Sep 21 10:03:13 GMT 2010



Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og hópa,
til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að Keldum.
Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar til ykkar
fólks.

 

 

Fræðsluerindi á vegum Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að
Keldum.

 

Fyrirlesari: Baldur Tumi Baldursson læknir, umsjónarmaður klíniskra
rannsókna hjá Kerecis ehf.

Heiti erindis: Sár, meingerð og meðferð með tilliti til stoðefnis úr
fiskroði.

 

Erindið verður haldið fimmtudaginn 23. september kl. 12:20 í bókasafni
Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.

 

Ýmsir sjúkdómar geta verið undirliggjandi orsakir langvinnra sára. Þó svo að
sár eigi sér sundurleitar orsakir, þá öðlast þau, eins og svo margir
sjúkdómar, „sitt eigið líf“. Því er lýst þannig að sárið frjósi í
bólgufasanum, í stað þess að fara í gegn um hann og byrja á
uppbyggingarfasanum. Í bólgufasa eru mest áberandi átfrumur og
kleyfkjörnungar. Ein af tilgátunum um orsökina fyrir þessari stöðnun er sú
að bólgufrumurnar í sárinu, ásamt þeim hrærigraut af  ýmsum mótefnavökum og
innvolsinu úr dauðum frumum, leiði til krónisks árásarástands þannig að of
mikið sé af próteinuppleysandi ensímum í sárinu.

Sárameðferð hefur á seinni tímum einkum beinst að því að leiðrétta
undirliggjandi orsakir. Eftir að tilraunir voru gerðar með virka meðferð með
vaxtarþáttum í lok 10. áratugarins, var farið að vinna með hina
niðurbrjótandi þætti og er þar komið að þætti stoðefna. Hugmyndin er m.a. að
gefa hinum eyðileggjandi þáttum ofgnótt af viðfangi.

 

______________________________________________________________

 

Sigurður H. Richter

Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum

Símar 585 5100 og 896 5811

Tölvupóstfang  shr at hi.is

 

 

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20100921/f5b9bc0b/attachment.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 7619 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20100921/f5b9bc0b/attachment.jpe 


More information about the Gerlanet mailing list