[Gerlanet] Fræðslufundur á Keldum. Jón M. Einarsson. Líffræðileg virkni kítínefna.

Sigurður H. Richter shr at hi.is
Tue Sep 7 09:29:51 GMT 2010



 

Fræðsluerindi á vegum Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að
Keldum.

 

Fyrirlesari: Jón M. Einarsson líffræðingur, rannsókna og þróunarstjóri hjá
Genís ehf.

Heiti erindis: Líffræðileg virkni kítínefna 

 

Erindið verður haldið fimmtudaginn 9. september kl. 12:20 í bókasafni
Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.

 

Genís hefur þróað framleiðsluaðferðir fyrir lífvirkar kítínafleiður. Árin
2006 – 2009 voru unnin 5 verkefni fyrir Genís hjá erlendum
rannsóknastofnunum, um virkni kítínafleiddra fásykra í sjúkdómsmódelum in
vivo og in vitro og í beinamódelum in vivo.

Síðustu árin hefur verið áhersla á að skapa fyrirtækinu traust vísindalegt
bakland, sem byggðist á náinni samvinnu við innlenda vísindamenn en
rannsóknir á lífvirkni kítínafleiða voru áður óþekktar á Íslandi. Nú taka 8
vísindamenn, tveir doktorsnemar og tveir mastersnemar virkan þátt í
verkefnum, sem tengjast Genís og starfar hópurinn undir heitinu ARM
(Aminosugars in Regenerative Medicine).  ARM-hópurinn hefur hlotið tvo
veglega verkefnisstyrki úr Tækniþróunarsjóði og nokkra styrki úr minni
sjóðum á vegum Rannís og Vísindasjóði LSH.

 

______________________________________________________________

 

Sigurður H. Richter

Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum

Símar 585 5100 og 896 5811

Tölvupóstfang  shr at hi.is

 

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20100907/8a82fc8d/attachment.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 7619 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20100907/8a82fc8d/attachment.jpe 


More information about the Gerlanet mailing list