[Gerlanet] Fræðsluerindi á Keldum. Eggert Gunnarsson. Smitandi hósti í hrossum, 2. hluti: Þáttur baktería.

Sigurður H. Richter shr at hi.is
Mon Oct 25 09:34:48 GMT 2010



Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og hópa,
til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að Keldum.
Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar til ykkar
fólks.

 

Fræðsluerindi á vegum Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum

 

Fyrirlesari:  Eggert Gunnarsson dýralæknir.

Heiti erindis:  Smitandi hósti í hrossum, 2. hluti: Þáttur baktería.

 

Erindið verður haldið fimmtudaginn 28. október, kl. 12:20 í bókasafni
Tilraunastöðvarinnar. 

 

Eins og fram hefur komið er ekkert sem bendir til þess að veirur eigi hlut
að máli sem orsök smitandi hósta í hrossum. Bakterían Streptococcus equi
undirtegund zooepidemicus hefur hins vegar ræktast úr nær öllum hrossum með
hósta og graftarkennt hor. Bakterían er tækifærissýkill og eru margir
stofnar til af þessari bakteríutegund. Einhverjir þeirra hafa verið
landlægir hér og valdið stökum tilfellum af lungnabólgu, júgurbólgu og
blóðeitrunum. Allar líkur eru á því að nýr og ágengari stofn hafi valdið
þessum faraldri nú. Í erindinu verður greint frá rannsóknum á erfðaefni
bakteríunnar og niðurstöðum sem gefa vísbendingu um að þessi baktería sé
aðalorsök faraldursins. Einnig verður fjallað um ýmsa eiginleika
bakteríunnar sem gera henni kleift að valda sjúkdómseinkennum, án þess að
önnur orsök sé undirliggjandi, og hafa um leið þýðingu fyrir þróun þessa
sjúkdóms og varnaraðgerðir á næstu árum. 

 

________________________________________________________________

 

Sigurður H. Richter

Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum

Símar 585 5100 og 896 5811

Tölvupóstfang  shr at hi.is

 

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20101025/e8a675bd/attachment.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 7619 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20101025/e8a675bd/attachment.jpe 


More information about the Gerlanet mailing list