[Gerlanet] Fræðsluerindi á Keldum. Vilhjálmur Svansson. Smitandi hósti í hrossum, I hluti - veirurannsóknir.
Sigurður H. Richter
shr at hi.is
Wed Oct 6 09:06:04 GMT 2010
Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og hópa,
til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að Keldum.
Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar til ykkar
fólks.
Fræðsluerindi á vegum Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að
Keldum.
Fyrirlesari: Vilhjálmur Svansson dýralæknir á Keldum.
Heiti erindis: Smitandi hósti í hrossum, I hluti - veirurannsóknir.
Erindið verður haldið fimmtudaginn 7. október kl. 12:20 í bókasafni
Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.
Í byrjun aprílmánaðar var tilkynnt um smitandi hósta í hrossum hérlendis.
Allur hrossastofn landsins hefur reynst næmur fyrir sýkingunni og nú má ætla
að megin þorri hrossa hafi smitast.
Í erindinu verður farið yfir smitsjúkdómastöðu hesta hérlendis og greint frá
veirurannsóknum sem gerðar hafa verið til að komast að orsökum faraldursins.
Erindið er fyrsta af þrem sem haldið verður á Tilraunastöðinni á Keldum um
rannsóknir á smitandi hósta.
Í næstu erindum munu dýralæknarnir Eggert Gunnarson og Ólöf Sigurðardóttir
fjalla um bakteríurannsóknir á smitandi hósta og lýsa meingerð sjúkdómsins.
______________________________________________________________
Sigurður H. Richter
Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum
Símar 585 5100 og 896 5811
Tölvupóstfang shr at hi.is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20101006/34484c91/attachment.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 7619 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20101006/34484c91/attachment.jpe
More information about the Gerlanet
mailing list