[Gerlanet] Fræðsluerindi á Keldum. Sigurður Ingvarsson. Þroski, vöxtur og starfsemi vessaæða í heilbrigðum og sjúkum vef.
Sigurður H. Richter
shr at hi.is
Mon Nov 8 09:44:06 GMT 2010
Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og hópa,
til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að Keldum.
Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar til ykkar
fólks.
Fræðsluerindi á vegum Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum
Fyrirlesari: Sigurður Ingvarsson forstöðumaður á Keldum.
Heiti erindis: Þroski, vöxtur og starfsemi vessaæða í heilbrigðum og sjúkum
vef.
Erindið verður haldið fimmtudaginn 11. nóvember, kl. 12:20 í bókasafni
Tilraunastöðvarinnar.
Vessaæðar hafa verið þekktar öldum saman en vitneskja um þau líffræðilegu
kerfi sem stjórna þroska, vexti og starfsemi þeirra takmarkast við sl. 15
ár. Hlutverk vessaæðakerfis er margþætt, en það sér m.a. um að skila vökva
úr vefjum inn í æðakerfið, tekur þátt í varnar- og ónæmiskerfi líkamans og
flytur fitu frá meltingarvegi til blóðrásar. Vessaæðar þroskast frá æðakerfi
á fósturskeiði. Allmörgum sameindum (s.s. vaxtarþáttum, frumuviðtökum,
ensímum og umritunarþáttum) og innanfrumuboðleiðum sem taka þátt í þroska,
vexti og starfsemi vessaæða í heilbrigðum og sjúkum vef hefur verið lýst á
síðastliðnum árum. Ýmsir sjúkdómar tengjast starfi og vexti vessaæða, s.s.
krabbamein og vessabjúgur. Í fyrirlestrinum verður gerð grein fyrir því
helsta sem Kari Alitalo, prófessor við Háskólann í Helsinki og samstarfsfólk
hans hafa lagt af mörkum til nýrrar þekkingar með rannsóknum sínum á
fræðasviðinu. Hann hlaut nýlega verðlaun sem veitt eru úr hinum virta sjóði
sem stofnaður var af Norðmanninum Anders Jahre og eru þau hin stærstu í
rannsóknum í líf- og læknisfræði innan Norðurlandanna.
________________________________________________________________
Sigurður H. Richter
Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum
Símar 585 5100 og 896 5811
Tölvupóstfang shr at hi.is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20101108/72f50ce4/attachment.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 7619 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20101108/72f50ce4/attachment.jpe
More information about the Gerlanet
mailing list