[Gerlanet] Fræðsluerindi á Keldum. Ólafur K. Nielsen. Rjúpnarannsóknir við Náttúrufræðistofnun Íslands.
Sigurður H. Richter
shr at hi.is
Tue Jan 26 11:25:23 GMT 2010
Fræðsluerindi á vegum Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að
Keldum.
Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og hópa,
til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að Keldum.
Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar til ykkar
fólks.
Fyrirlesari: Ólafur K. Nielsen fuglafræðingur.
Heiti erindis: Rjúpnarannsóknir við Náttúrufræðistofnun Íslands.
Erindið verður haldið fimmtudaginn 28. janúar, kl. 12:20 á Tilraunastöð
Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.
Saga rjúpnarannsókna við Náttúrufræðistofnun Íslands spannar um 60 ár.
Frumkvöðull rjúpnarannsókna var Finnur Guðmundsson, fuglafræðingur.
Rannsóknirnar hafa snúist um tvo meginþætti, annars vegar að vakta stofnin
og hins vegar að reyna að skýra reglubundnar stofnsveiflur rjúpunnar.
Megináherslan hefur verið á vöktun rjúpnastofnsins, en þar er aflað gagna
sem eru grunnur veiðiráðgjafar Náttúrufræðistofnunar til
Umhverfisráðuneytis. Í fyrirlestrinum verður fjallað stuttlega um sögu
rjúpnarannsókna og síðan verður gerð nánari grein fyrir niðurstöðum
rannsókna á samspili fálka og rjúpu og hugsanlegu hlutverki fálkans í
stofnsveiflu rjúpunnar.
______________________________________________________________
Sigurður H. Richter
Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum
Símar 585 5100 og 896 5811
Tölvupóstfang shr at hi.is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20100126/6dfa6d8e/attachment.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 7619 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20100126/6dfa6d8e/attachment.jpe
More information about the Gerlanet
mailing list