[Gerlanet] Vorþing ÖRFÍ
Snorri Páll
spd at hi.is
Mon Feb 28 13:25:50 GMT 2005
Örverufræðifélag Íslands
Vorþing
Við viljum minnum þá sem ætla að taka þátt í veggspjaldafundi ÖRFÍ á að
senda inn ágrip í dag eða í síðasta lagi á morgun á þetta póstfang.
Við hvetjum alla til að koma og taka þátt í léttu spjalli eina kvöldstund og
þiggja kaffi og kökur á eftir.
Veggspjaldafundur Örverufræðifélags Íslands verður haldinn fimmtudaginn 3.
mars næstkomandi
að Lynghálsi 13, í fundarsal á 1. hæð, milli klukkan 20 og 22.
Fundurinn verður með sama sniði og Haustþing Örverufræðifélagsins hafa verið
undanfarin ár.
Að loknum kynningum verða léttar veitingar í boði Thorarensen lyf og Groco.
Félagar eru eindregið hvattir til að koma með hverskonar kynningarefni sem
þeir hafa útbúið og kynna það á þessum fundi.
Ágrip skulu sendast á þetta netfang fyrir 1. mars og munu þau birtast í
fréttabréfi Örverufræðifélagsins sem kemur út 3. mars.
Við viljum minna á að þáttaka á veggspjaldafundi telst til birtinga.
Allir eru velkomnir
Fyrir hönd stjórnar Örverufræðifélags Íslands,
Snorri Páll, ritstjóri fréttabréfs
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20050228/2fd39d5b/attachment.html
More information about the Gerlanet
mailing list