[Gerlanet] Nýtt merki! Ný heimasíða!
Viggó Þór Marteinsson
viggo.marteinsson at prokaria.com
Fri Feb 25 08:45:41 GMT 2005
Kæru félagsmenn!
Ég vil vekja athygli ykkar á nýrri heimasíðu og nýju merki Örverufræðifélags Íslands. Skammstöfunin fyrir félagið á íslensku er ÖRFÍ en TIMS (The Icelandic Microbiology Society) á ensku.
Með nýjum áherslum og tækni í samskiptum hafa heimasíður reynst mjög gagnlegar við að koma upplýsingum á framfæri. Útlit og viðmót slíkra síðna skiptir miklu máli fyrir notendur. Með þetta að leiðarljósi hófst vinna á síðasta starfsári undir stjórn Bjarnheiðar Guðmundsóttur fráfarandi formanns við að lífga upp á útlit og merki félagsins. Útkoman varð nýtt merki og nýtt útlit heimasíðu.
Ragnhildur Ragnarsdóttir hannaði hið nýja merki félagsins og útlit heimasíðunnar í samvinnu við stjórnarmeðlimi ÖRFÍ. Kostnaður við hönnunina var gjöf frá MV grafísk verkmiðlun. Uppsetning heimasíðunnar var í höndum Snorra Páls ritstjóra vef- og fréttabréfs félagsins.
Heimasíðan á að þjónusta meðlimi ÖRFÍ og alla þá sem hafa áhuga á örverufræði. Meðal annars verður reynt ná til almennings í gegnum síðuna og kynna mismunandi hliðar örverufræðinnar. Við gerum ráð fyrir að síðan verði breytileg og í örri þróun. Allar góðar ábendingar varðandi heimasíðuna eru vel þegnar og þeim má koma til vefstjóra á heimasíðunni.
Vonast er til að almenn ánægja verði með nýja merkið og heimasíðuna (http://www.hi.is/fel/orveruf/) sem kemur til með að þjóna ykkur og öðrum sem hafa áhuga á örverufræðum.
Að lokum minni ég á vorþing ÖRFÍ sem verður haldið 3. mars að Lynghálsi 13 milli klukkan 20 og 22. Veitingar verða í boði Thorarensen lyf og Groco. Vinsamlegast sendið ágrip til Snorra (spd at hi.is) fyrir 1. mars
Fyrir hönd stjórnar,
Viggó Þór Marteinsson
Formaður Örverufræðifélags Íslands
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20050225/9c4d3268/attachment.html
More information about the Gerlanet
mailing list