[Gerlanet] Day of immunology og málþing 30.apríl
Vala Friðriksdóttir
valaf at hi.is
Mon Apr 25 12:50:44 BST 2005
Ónæmisfræðingar berjast fyrir betri heilsu
HIV, inflúensa, ofnæmi, gigtsjúkdómar, krabbamein þetta eru allt samheiti
yfir sjúkdóma sem
orsakast af göllum í ónæmiskerfinu, en heilbrigt ónæmiskerfi verndar
líkamann gegn sýkingum
og æxlisvexti með góðum árangri. Skilningur á ónæmiskerfinu er
lykilforsenda þess að hægt sé
að þróa viðeigandi meðferðir.
Bólusetningar, eitt mesta afrek læknisfræðinnar, byggja á starfsgetu
ónæmiskerfisins. Evrópu
stafar ekki lengu ógn af smitsjúkdómum eins og mislingum, hettusótt, rauðum
hundum,
barnaveiki, stífkrampa og mænusótt. Þar sem ónæmisfræðin er forsenda annara
fræðigreina
vísinda og læknisfræði er mikilvægi hennar oft vanmetið.
Þess vegna hleypa ónæmisfræðingar af stað átaki til að auka meðvitund
þeirra sem taka
ákvarðanir í vísindum og stjórnmálum svo og til að auka áhuga almennings um
alla Evrópu.
Evrópusamtök ónæmisfræðifélaga, regnhlífarsamtök 28 félaga með yfir 17.000
félagsmenn,
hafa stofnað til Dags ónæmisfræðinnar þann 29. apríl, 2005.
Málþing fyrir almenning og ráðamenn, haldið í tilefni af degi
ónæmisfræðinnar
Laugardaginn 30. Apríl 2005, kl 13-16
í fyrirlestrasal Íslenskrar erfðagreiningar, Sturlugötu 8, Rvk
Málþingið er öllum opið og aðgangur ókeypis.
Bólusetningar gegn smitsjúkdómum; árangur og væntingar
Dagskrá:
13:00-13:10 Friðrika Harðardóttir, formaður Ónæmisfræðifélags Íslands:
Dagur ónæmisfræðinnar; hvers vegna?
13:10-13:20 Jón Kristjánsson, heilbrigðisráðherra: Ávarp.
13:20-13:40 Ingileif Jónsdóttir, dósent: Bólusetningar gegn smitsjúkdómum;
hvað gegn hverju?
13:40-14:00 Þórólfur Guðnason, læknir: Bólusetningar á Íslandi; sögulegt
yfirlit.
14:00-14:20 Sigurveig Þ. Sigurðardóttir, læknir: Íslenskar rannsóknir á
bólusetningum gegn pneumókokkasýkingum; við getum lagt okkar að mörkum!
14:20-14:40 Kaffihlé
14:40-15:00 Þórólfur Guðnason, læknir: Bólusetningarátak á Íslandi gegn
meningókokkum C; árangur strax?
15:00-15:20 Ólafur Guðlaugsson, læknir: Varnir gegn fuglaflensufaraldri;
hvað er til ráða?
15:20-15:40 Þórólfur Guðnason, læknir: Eru bólusetningar hættulegar?
15:40-16:00 Ingileif Jónsdóttir, dósent: Bólusetningar til að vernda
nýbura; framtíðarsýn.
Fundarstjóri er Friðrika Harðardóttir, formaður Ónæmisfræðifélags Íslands.
Heilbrigðisstarfsfólk er sérstaklega hvatt til að mæta
Dagur ónæmisfræðinnar http://www.dayofimmunology.org/
Ónæmisfræðifélag Íslands http://www.hi.is/fel/onaemi/
***************************************************************************
Vala Friðriksdóttir, Dr. scient. Immunologist
Institute for Experimental Pathology, Keldur
University of Iceland, IS-112 Reykjavík
ICELAND
tel: +(354)5855100, (direct 5855165), fax: +(354)5673979
mobile tel: +(354)8960844, e-mail: valaf at hi.is
http://www.keldur.hi.is
***************************************************************************
More information about the Gerlanet
mailing list