[Gerlanet] Fræðslufundur Keldum 28.apríl: Herborg Hauksdóttir - Niðurbrot próteina í Arabidopsis thaliana: E3 ubiquitin lígasar í aðalhlutverki

Vala Friðriksdóttir valaf at hi.is
Wed Apr 20 15:54:30 BST 2005


Fræðslufundur Keldum

Nafn fyrirlesara: Herborg Hauksdóttir, líffræðingur Keldum.

Titill erindis: Niðurbrot próteina í Arabidopsis thaliana: E3 ubiquitin
lígasar í aðalhlutverki.

Stund og staður: Fimmtudagur 28. apríl 2005, kl. 12:20 í bókasafni Keldna.

Ágrip: Skipulagt niðurbrot gallaðra eða ónauðsynlegra próteina er mikilvægt
starfsemi frumunnar. E3 lígasar gegna lykilhlutverki í niðurbrotsferlinu en
þeir merkja prótein til niðurbrots með því að hengja á þau lítil prótein
sem nefnast ubiquitin. Einn flokkur E3 lígasa einkennist af
RING-próteinhneppi (RING-E3 lígasar). Markmið þessa verkefnis var í fyrsta
lagi að finna möguleg RING-E3 lígasagen í erfðamengi plöntunnar Arabidopsis
thaliana; í öðru lagi að klóna genin sem fyndust og að prófa hvort þau gætu
hengt ubiquitin á prótein in vitro; og í þriðja lagi að leita að
varðveittum amínósýruröðum fyrir utan RING-hneppið til þess að finna
vísbendingar um önnur próteinbindihneppi.
    Með leit í gagnabönkum fundust 469 möguleg RING-E3 lígasagen í
Arabidopsis thaliana. Mörg þeirra voru klónuð og sýnt að langflest geta
hengt ubiquitin á prótein in vitro. Einnig var sýnt að RING-hneppið er
nauðsynlegt fyrir þessa virkni. Varðveittar amínósýruraðir fyrir utan
RING-hneppið reyndust vera fjölbreyttar og var RING-E3 lígösunum skipt í 30
hópa á grundvelli þeirra. Fjöldi og fjölbreytileiki RING-E3 lígasagena sem
fundinn var bendir til þess að sértækt niðurbrot próteina af völdum E3
lígasa leiki mikilvægt hlutverk í frumum Arabidopsis thaliana plöntunnar.
    Þetta rannsóknarverkefni var unnið við Kaliforníuháskóla (University of
California, Davis).




Fræðslufundir eru haldnir í bókasafni Keldna.  Bókasafnið er í húsi 2
(næsta bygging fyrir neðan hús 1,
sem er nyrsta hús með aðalinngangi og móttöku).

Inngangur í bókasafn er á norðanverðu húsi 2.

Fólk er beðið um að mæta tímanlega.

Upplýsingar um staðsetningu Keldna má finna á korti á heimasíðu Keldna.
Slóðin er http://www.keldur.hi.is


Allir velkomnir.

Kveðja.
Fræðslustjóri.



***************************************************************************

Vala Friðriksdóttir, Dr. scient. Immunologist
Institute for Experimental Pathology, Keldur
University of Iceland, IS-112 Reykjavík
ICELAND
tel: + (354) 5674700
fax:  + (354) 5673979
e-mail: valaf at hi.is

***************************************************************************





More information about the Gerlanet mailing list