[Gerlanet] [Hi-starf] Fræðslufundur Keldum miðvikudag 10.NÓVEMBER: Magnús Örn Magnússon - Stofngerð karfa á norðurhveli jarðar.

Vala Friðriksdóttir valaf at hi.is
Fri Nov 5 09:28:39 GMT 2004


Ég sendi þetta aftur með réttri dagsetningu.
Á að vera 10.nóvember en ekki október.

Kveðja Vala



Fræðslufundur Keldum
Nafn fyrirlesara:
Magnús Örn Stefánsson, sérfræðingur, stofnerfðafræðirannsóknum,
Hafrannsóknastofnun

Titill erindis:
Stofngerð karfa á norðurhveli jarðar

Stund og staður:
Miðvikudag 10. nóvember kl. 12:20, bókasafni Keldna

Ágrip:
Karfi af tegundinni S. mentella er mikilvæg tegund í veiði í norður
Atlantshafi. Hér voru notuð níu microsatellite erfðamörk til að skima sýni
frá stöðum sem náðu yfir allt útbreiðslusvæði tegundarinnar. Sýnunum var
safnað við Svalbarða; við norður Noreg; við Færeyjar; á kantinum við Ísland
fyrir suðvestan, suðaustan og norðvestan land; á suðaustur og suðvestur
Grænlandskantinum; í Grænlandshafi og á Flæmska hattinum. Niðurstöðurnar
sýndu flókna stofngerð karfa á norðurhveli jarðar. Greining gagnanna leiddi
í ljós að karfinn flokkast í þrjá megin hópa. Karfi frá Íslandskantinum,
Grænlandshafi grunnu búsvæði (< 600 metrar) og Grænlandshafi djúpu búsvæði
(> 600 metrar) mynda kjarnann í hverjum hóp. Sýni frá öðrum stöðum í norður
Atlantshafi flokkast í þessa þrjá hópa.


Fræðslufundir eru haldnir í bókasafni Keldna.  Bókasafnið er í húsi 2
(næsta bygging fyrir neðan hús 1,
sem er nyrsta hús með aðalinngangi og móttöku).

Inngangur í bókasafn er á norðanverðu húsi 2.

Fólk er beðið um að mæta tímanlega.

Upplýsingar um staðsetningu Keldna má finna á korti á heimasíðu Keldna.
Slóðin er http://www.keldur.hi.is


Allir velkomnir.

Kveðja.
Fræðslustjóri.



***************************************************************************

Vala Friðriksdóttir, Dr. scient. Immunologist
Institute for Experimental Pathology, Keldur
University of Iceland, IS-112 Reykjavík
ICELAND
tel: + (354) 5674700
fax:  + (354) 5673979
e-mail: valaf at hi.is

***************************************************************************



_______________________________________________
Hi-starf mailing list
Hi-starf at hi.is
http://listar.hi.is/mailman/listinfo/hi-starf







More information about the Gerlanet mailing list