[Gerlanet] Fræðslufundur Keldum MIÐVIKUDAG 10.október: Magnús Örn Magnússon - Stofngerð karfa á norðurhveli jarðar.
Vala Friðriksdóttir
valaf at hi.is
Fri Nov 5 08:47:30 GMT 2004
Fræðslufundur Keldum
Nafn fyrirlesara:
Magnús Örn Stefánsson, sérfræðingur, stofnerfðafræðirannsóknum,
Hafrannsóknastofnun
Titill erindis:
Stofngerð karfa á norðurhveli jarðar
Stund og staður:
Miðvikudag 10. október kl. 12:20, bókasafni Keldna
Ágrip:
Karfi af tegundinni S. mentella er mikilvæg tegund í veiði í norður
Atlantshafi. Hér voru notuð níu microsatellite erfðamörk til að skima sýni
frá stöðum sem náðu yfir allt útbreiðslusvæði tegundarinnar. Sýnunum var
safnað við Svalbarða; við norður Noreg; við Færeyjar; á kantinum við Ísland
fyrir suðvestan, suðaustan og norðvestan land; á suðaustur og suðvestur
Grænlandskantinum; í Grænlandshafi og á Flæmska hattinum. Niðurstöðurnar
sýndu flókna stofngerð karfa á norðurhveli jarðar. Greining gagnanna leiddi
í ljós að karfinn flokkast í þrjá megin hópa. Karfi frá Íslandskantinum,
Grænlandshafi grunnu búsvæði (< 600 metrar) og Grænlandshafi djúpu búsvæði
(> 600 metrar) mynda kjarnann í hverjum hóp. Sýni frá öðrum stöðum í norður
Atlantshafi flokkast í þessa þrjá hópa.
Fræðslufundir eru haldnir í bókasafni Keldna. Bókasafnið er í húsi 2
(næsta bygging fyrir neðan hús 1,
sem er nyrsta hús með aðalinngangi og móttöku).
Inngangur í bókasafn er á norðanverðu húsi 2.
Fólk er beðið um að mæta tímanlega.
Upplýsingar um staðsetningu Keldna má finna á korti á heimasíðu Keldna.
Slóðin er http://www.keldur.hi.is
Allir velkomnir.
Kveðja.
Fræðslustjóri.
***************************************************************************
Vala Friðriksdóttir, Dr. scient. Immunologist
Institute for Experimental Pathology, Keldur
University of Iceland, IS-112 Reykjavík
ICELAND
tel: + (354) 5674700
fax: + (354) 5673979
e-mail: valaf at hi.is
***************************************************************************
More information about the Gerlanet
mailing list