[Gerlanet] Vorþing á Keldum.
Vala Friðriksdóttir
valaf@hi.is
Thu, 15 May 2003 11:52:29 +0000
Fréttatilkynning frá Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum:
Föstudaginn 16. maí 2003 verður haldið "Vorþing á Keldum". Um er að ræða
hálfs dags fund sem haldinn er á bókasafni Tilraunastöðvar Háskóla Íslands
í meinafræði að Keldum. Fundurinn er ókeypis og öllum opin. Ársskýrsla
Keldna fyrir árið 2002 kemur út sama dag.
Ráðstefnan hefst með erindi Vilhjálms Lúðvíkssonar, ráðgjafa á skrifstofu
vísindamála í menntamálaráðuneytinu, um nýskipan rannsóknamála kl. 13:00.
Tilraunastöðin fæst við ýmis vísindaverkefni sem tengjast sjúkdómum og
sjúkdómavörnum, einkum í dýrum. Auk þess fer þar fram þjónustustarfsemi
vegna greiningar og eftirlits með heilbrigði dýra og dýrasjúkdómum, þar með
talið fisksjúkdómum. Á Tilraunastöðinni eru þrjár fagdeildir;
Fisksjúkdómadeild, Bakteríu- og sníkjudýradeild og Veiru- og
sameindalíffræðideild og ein stoðdeild, Skrifstofa/búsýsla.
Á fundinum munu deildarstjórar stofnunarinnar og aðrir starfsmenn flytja
erindi um ýmislegt sem snýr að dýrasjúkdómarannsóknum. Helstu viðfangsefni
fundarins eru: Kynning á ársskýrslu, kynning á starfsemi og verkefnum
mismunandi deilda, holdhnjóska í hrossum, mæði-visnu veiran og sníkjudýr í
álum.
Upplýsingar um dagskrá og flytjendur má finna á heimasíðu Keldna, veffang:
www.keldur.hi.is. Forstöðumaður Tilraunastöðvarinnar er Sigurður Ingvarsson
og veitir hann allar nánari upplýsingar í síma 5674700 eða 8943235.
_____________________________________________________
VORÞING Á KELDUM, dagskrá:
Fundarstjóri: Guðrún Agnarsdóttir
13:00-13:10 Setning vorþings, Sigurður Ingvarsson, forstöðumaður
13:10-13:25 Nýskipan rannsóknamála, Vilhjálmur Lúðvíksson, ráðgjafi á
skrifstofu vísindamála í menntamálaráðuneyti.
13:25-13:55 Ársskýrsla, Sigurður Ingvarsson, forstöðumaður
13:55-14:10 Umræður um ársskýrslu
14:10-14:25 Starfsemi bakteríu- og sníkjudýradeildar, Eggert Gunnarsson
14:25-14:40 Rannsóknir á holdhnjósku í hrossum, Hrund Ýr Óladóttir
14:40-15:20 Kaffihlé
15:20-15:35 Kynning á verkefnum veiru-og sameindalíffræðideildar,
Bergljót Magnadóttir
15:35-15:50 Rannsóknir á mæði- visnuveiru, Valgerður Andrésdóttir
15:50-16:05 Kynning á verkefnum fisksjúkdómadeildar, Sigurður Helgason
16:05-16:20 Sníkjudýr í álum á Íslandi, Árni Kristmundsson
16:20-16:30 Þingslit, Helgi S. Helgason, framkvæmdastjóri
Sigurdur Ingvarsson, Dr.Med.Sc.
Director and Professor
Institute for Experimental Pathology
University of Iceland
Keldur v. Vesturlandsveg
112 Reykjavik, Iceland
tel: 354-5674700 and 354-5674769-123
gsm: 354-8943235
fax: 354-5673979
email: siguring@hi.is
http://www.keldur.hi.is