[Gerlanet] Vorþing á Keldum 16. maí - dagskrá
Vala Friðriksdóttir
valaf@hi.is
Wed, 7 May 2003 11:41:53 +0000
Vorþing á Keldum
Á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum(
http://www.keldur.hi.is/) eru stundaðar grunnrannsóknir í líf- og
læknisfræði dýra og manna, auk rannsókna og þjónustu í þágu
heilbrigðiseftirlits, sjúkdómsgreininga og sjúkdómsvarna fyrir búfé og
önnur dýr í samstarfi við yfirdýralækni.
Föstudaginn 16. maí verður haldið vorþing á Keldum þar sem starfsemi
stofnunarinnar verður kynnt. Þann sama dag kemur ársskýrsla stofnunarinnar
fyrir árið 2002 út í rafrænni og prentaðri útgáfu.
Yður er hér með boðið til vorþings á Keldum, sem haldið verður í bókasafni
Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum 16. maí 2003.
Vorþing á Keldum, dagskrá
Fundarstjóri: Guðrún Agnarsdóttir
13:00-13:10 Setning vorþings, Sigurður Ingvarsson, forstöðumaður
13:10-13:25 Ávarp Tómasar Inga Olrich, menntamálaráðherra
13:25-13:55 Ársskýrsla, Sigurður Ingvarsson, forstöðumaður
13:55-14:10 Umræður um ársskýrslu
14:10-14:25 Starfsemi bakteríu-, sníkjudýra- og
meinafræðideildar, Eggert Gunnarsson
14:25-14:40 Rannsóknir á holdhnjósku í hrossum, Hrund Ýr
Óladóttir
14:40-15:20 Kaffihlé
Fundarstjóri: Bjarnheiður K. Guðmundsdóttir
15:20-15:35 Kynning á verkefnum veiru-og sameindalíffræðideildar,
Bergljót Magnadóttir
15:35-15:50 Rannsóknir á mæði- visnuveiru, Valgerður Andrésdóttir
15:50-16:05 Kynning á verkefnum fisksjúkdómadeildar, Sigurður
Helgason
16:05-16:20 Sníkjudýr í álum á Íslandi, Árni Kristmundsson
16:20-16:30 Þingslit, Helgi S. Helgason, framkvæmdastjóri
Virðingarfyllst
Sigurður Ingvarsson,
forstöðumaður