[Gandur] Málþing á Þjóðminjasafni Íslands í tilefni af alþjóðlegum degi óáþreifanlegs menningararfs þann 17. október 2024
Sigurlaug Dagsdóttir - HI
sid3 at hi.is
Wed Oct 9 13:40:59 GMT 2024
Lifandi hefðir í nýju ljósi: Dagur óáþreifanlegs menningararfs á Þjóðminjasafni Íslands
Málþing á Þjóðminjasafni Íslands í tilefni af alþjóðlegum degi óáþreifanlegs menningararfs þann 17. október 2024, kl 13:00 - 16:00.
Flutt verða fjölbreytt erindi er snúa að hefðum, handverki og siðum.
Sýnd verður stuttmynd sem gerð var í tilefni þess að íslensk sundlaugamenning var tilnefnd til á lista UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf mannkyns. Myndin var samstarfsverkefni Menningar-og viðskiptaráðuneytisins og Reykjavíkurborgar.
Dagskrá:
13:00: Harpa Þórsdóttir þjóðminjavörður setur málþingið.
13:05: Sigurlaug Dagsdóttir, verkefnisstýra Lifandi hefða og þjóðfræðingur hjá Þjóðminjasafni Íslands: Lifandi hefðir og sundlaugamenning á Íslandi til UNESCO: Fyrsta sjálfstæða tilnefning Íslands á yfirlitsskrá UNESCO um óáþreifanlegan menningararf og yfirlitsskráin Lifandi hefðir.
13:30: Einar Jóhann Lárusson, tréskipasmiður: Tréskipasmíði, deyjandi starfsgrein
14:00: : Jón Jónsson, þjóðfræðingur hjá Rannsóknasetri HÍ á Ströndum: Unnið með óáþreifanlegan menningararf
14:30: Kristín Vala Breiðfjörð, formaður /framkvæmdarstjóri Heimilisiðnaðarfélags Íslands: Heimilisiðnaðarfélag Íslands: óáþreifanlegur menningararfur í 110 ár
15:00: Helga Vollertsen, sérfræðingur þjóðhátta við Þjóðminjasafn Íslands: Menningardeiglan. Frásagnir pólskra Íslendinga.
15:30: Kaffi og kleinur og spjall
16:00: Fundarlok
Fundarstjóri: Sigurlaug Dagsdóttir
Við hlökkum til að sjá ykkur!
Frítt er inn á viðburðinn.
More information about the Gandur
mailing list