[Gandur] Enn opið fyrir umsóknir vegna Landsbyggðarráðstefnu 2023

Félag þjóðfræðinga á Íslandi felagthjodfraedinga at gmail.com
Wed Sep 28 12:02:17 GMT 2022


Við viljum vekja athygli á því að enn er opið fyrir umsóknir vegna
Landsbyggðarráðstefnu Félags þjóðfræðinga á Íslandi 2023!! Umsóknarfrestur
er til 16. október 2022.
Stjórn FÞÍ auglýsir hér með eftir aðilum til samstarfs vegna
Landsbyggðarráðstefnu Félags Þjóðfræðinga á Íslandi haustið 2023. Við höfum
ákveðið að vegna SIEF vorið 2023 sé hentugast að ráðstefnan fari fram að
hausti svo að ráðstefnuþyrstir þjóðfræðingar þurfi síður að velja á milli.
Því hefur helgin 23. – 24. september 2023 orðið fyrir valinu sem
viðmiðunartímasetning fyrir ráðstefnuna.
Nú óskum við eftir umsóknum frá þjóðfræðingum á landsbyggðinni sem vildu
gjarnan fá ráðstefnuna í sína heimahaga. Eftir að valið hefur verið úr
umsóknum verður skipuð landsbyggðarráðstefnunefnd sem starfar með stjórn
FÞÍ að undirbúningi, skipulagi og styrkumsóknum. Við mælum því með að að
minnsta kosti tveir þjóðfræðingar sameinist um umsóknir og séu tilbúnir að
taka þátt í undirbúningsvinnu með okkur eftir að staður hefur verið valinn.
Umsóknarfrestur er til 16. október 2022. Umsókn skal send í tölvupósti á
felagthjodfraedinga at gmail.com. Hægt er að hafa samband við okkur ef
einhverjar spurningar vakna við gerð umsóknar á sama netfang.
Á umsókninni þarf eftirfarandi að koma fram:
1. Umsóknaraðilar.
2. Bæjarfélag þar sem ráðstefnan yrði haldin.
3. Aðstaða. Þar er átt við aðstöðu til ráðstefnuhalds og einnig
gistimöguleika á svæðinu.
4. Mögulegir styrkveitendur t.d. uppbyggingarsjóðir, styrkir frá
sveitarfélagi, fyrirtæki o.fl.
5. Hugmyndir að afþreyingu utan ráðstefnuhalds s.s. safnaheimsóknir,
gönguferðir, skemmtiatriði, matur og menning.
6. Vangaveltur um kostnað.

Með þökk og tilhlökkun
Stjórn FÞÍ


More information about the Gandur mailing list