[Gandur] Letur og langspil: Fyrirlestrar nýútskrifaðra meistaranema í þjóðfræði

Félag þjóðfræðinga á Íslandi felagthjodfraedinga at gmail.com
Mon Oct 17 12:34:15 GMT 2022


Fyrirlestrarnir *Letur og langspil* á morgun eru kl. 16:30.
Það fylgdi óvart ekki með í síðasta pósti.

Hér er tengill á viðburðinn á facebook fyrir þau sem eru þar:
https://fb.me/e/2q0YDJhd1

Bestu kveðjur
- FÞÍ

mán., 17. okt. 2022 kl. 11:56 skrifaði Félag þjóðfræðinga á Íslandi <
felagthjodfraedinga at gmail.com>:

> Á morgun (þriðjudaginn 18. október) segja tveir nýútskrifaðir meistarar í
> þjóðfræði, Eyjólfur Eyjólfsson og Sigrún Sigvaldadóttir, frá
> meistaraverkefnum sínum. Fyrirlestrarnir verða í Odda 201 - Háskóla Íslands.
> Í fyrirlestri Eyjólfs verður sagt frá meistararannsókninni Hugverk og
> handverk : langspilið í upphafi 21. aldar. Empirísk eigindleg rannsókn þar
> sem gagnasöfnun og greiningarferli tók mið af greiningaraðferð grundaðrar
> kenningar og skynrænni aðferðafræði. Þá verður fjallað um framhaldslíf
> rannsóknarinnar – hvernig gamla baðstofuhljóðfærið rataði í hátæknisali Fab
> Lab nýsköpunarseturs.
>
> Sigrún Sigvaldadóttir mun segja frá ritgerð sinni „Þú mundir ekki setja
> Comic Sans á Kauphöllina“: Skilningur, áhrif og túlkun leturformsins. Í
> lokaverkefni sínu skoðaði hún hvaða áhrif mismunandi leturnotkun hefur á
> lesendur og hvernig má túlka og skilja ólík tákn- og myndmál leturforma.
> Með það að markmiði að rannsaka hvort bókstafir innihaldi frekari frásögn
> með formgerð sinni umfram hljóðtáknin sem þeir bera með sér. Verkefnið
> byggðist annars vegar á leturtöflu sem gaf ákveðna yfirsýn á leturnotkun í
> íslenskum bókum. Hins vegar beindist rannsóknarhlutinn að viðbrögðum og
> skilningi viðmælenda á ólíkum leturgerðum.
>
> Hlökkum til að sjá sem flest
> -Félag þjóðfræðinga á Íslandi
>


More information about the Gandur mailing list