[Gandur] Fyrirlestur 3. október: „Ég vil helst ekki labba ein heim...“ Upplifun kvenna af öryggi í miðborg Reykjavíkur, áhrifaþættir og öryggisbrögð

Félag þjóðfræðinga á Íslandi felagthjodfraedinga at gmail.com
Sun Sep 29 13:48:32 GMT 2019


Góðan dag,

Fimmtudaginn 3. október kl. 17:15 mun þjóðfræðingurinn Björk Hólm segja frá
nýlegri MA rannsókn sinni í þjóðfræði sem ber yfirskriftina: „Ég vil helst
ekki labba ein heim...“ Upplifun kvenna af öryggi í miðborg Reykjavíkur,
áhrifaþættir og öryggisbrögð. Viðburðurinn verður haldinn í Háskóla
Íslands, í Odda - stofu 206.

Það eru allir velkomnir! Að erindinu loknu munum við svo færa okkur yfir á
Stúdentakjallarann, spjalla saman og hafa gaman.

Ágrip erindis:
Í fyrirlestrinum mun ég gera grein fyrir rannsókn og efni lokaverkefnis
míns til MA gráðu í þjóðfræði. Líkt og titillinn gefur til kynna geri ég
tilraun til að draga upp mynd af öryggistilfinningu kvenna, hverju hún
tekur mið af og hvernig þær bregðast við henni. Niðurstöður rannsóknarinnar
eru fjölþættar enda tilfinningar krefjandi og margslungið rannsóknarefni.
Það var áberandi að heimildakonur álitu miðborgina ekki hættulegan stað í
þeim skilningi en sammældust þó allar um að vissar kringumstæður á ákveðnum
tíma geti skapað aðstæður sem valda óöryggi – þetta fjalla ég nánar um
fyrirlestrinum. Öryggiskennd viðmælenda mótast þannig af víxlverkun ótal
þátta í félagslegu og byggðu umhverfi, í bland við eigin reynslu og
upplifanir. Birtuskilyrði, fólk og fólksfjöldi eru dæmi um áhrifaþætti sem
fjallað er um en auk þess eru áhrif eftirlitsmyndavéla og samtímasagna
tekin til greina.


More information about the Gandur mailing list