[Gandur] Aðalfundur FÞÍ 24. maí

Dagrún Ósk Jónsdóttir felagthjodfraedinga at gmail.com
Sat May 11 22:32:47 GMT 2019


Aðalfundur og aðalpartý 2019

Föstudaginn 24. maí verður haldinn aðalfundur Félags þjóðfræðinga á Íslandi á Rakarastofunni Herramenn í Hamraborg 9, klukkan 19:00!

Á fundinum verður farið yfir starf félagsins síðasta árið, sagt frá því sem er framundan, hugmynd um landsbyggðarráðstefnu kynnt og kosið um nýtt einkennis merki (lógó) félagsins. Samkvæmt lögum félagsins er einnig komið að því að kjósa í stöður gjaldkera, ritara (núverandi ritari hyggst gefa kost á sér áfram) og meðstjórnanda. Framboð í öll þessi embætti er hægt að senda inn á netfang félagsins felagthjodfraedinga at gmail.com 

Eftir það verður orðið gefið laust fyrir allskonar umræður um þjóðfræði, félagið og önnur skemmtilegheit. 

Boðið verður upp á bjór, vín og allskonar gómsætar léttar veitingar á fundinum. Eftir fundinn munum við svo rölta (eða taka strætó) saman á einhvern vel valdan bar.

Við vonumst til að sjá sem flesta. Þetta verður dúndur fjör!

Kær kveðja, 
Félag þjóðfræðinga á Íslandi

Sent from Mail for Windows 10



More information about the Gandur mailing list