[Gandur] Lógó keppni Félags þjóðfræðinga á Íslandi

Félag þjóðfræðinga á Íslandi felagthjodfraedinga at gmail.com
Sun May 5 00:38:04 GMT 2019


Hæhæ,


Nú ætlum við að efla til keppni um nýtt einkennis merki (lógó) fyrir Félag
þjóðfræðinga á Íslandi! Það má vera hvernig sem er en verður auðvitað að
tengjast þjóðfræði á einhvern hátt :) Það er mikilvægt að lógó-ið sé vandað
en ekkert hámark er á hve margar hugmyndir hver einstaklingur má senda inn,
ekki er heldur nauðsynlegt að vera í félaginu til að senda inn hugmynd.


Skila þarf inn lógó-inu fyrir 20. maí í tölvupósti á netfangið
felagthjodfraedinga at gmail.com í góðri upplausn!


Kosið verður um lógóið á aðalfundi Félags þjóðfræðinga sem haldinn verður
föstudaginn 24. maí næstkomandi skemmtileg verðlaun verða veitt fyrir
lógóið sem verður valið.


Kær kveðja,

Fyrir hönd Félags þjóðfræðinga Dagrún Ósk


More information about the Gandur mailing list