[Gandur] Aðalfundur Félags þjóðfræðinga á Íslandi

Félag þjóðfræðinga á Íslandi felagthjodfraedinga at gmail.com
Wed Apr 24 17:17:27 GMT 2019


Sæl og blessuð,

Föstudaginn 24. maí verður haldinn aðalfundur Félags þjóðfræðinga á Íslandi
í Hamraborg (nánari staðsetning kemur fljótlega) kl. 19:00!

Á dagskrá fundarins verður meðal annars:

-Farið yfir starf félagsins síðasta árið og sagt frá því sem er framundan

-Kosið í stöðu gjaldkera, ritara, meðstjórnanda og tveggja varamanna

-Við ætlum að nýta tækifærið og kjósa nýtt einkennismerki (lógo) félagsins.
Tillögur berist fyrir 20. maí á netfangið felagthjodfraedinga at gmail.com

-Einnig verða kynnt áform um Landsbyggðarráðstefnu vorið 2020

-Svo verður orðið gefið laust fyrir allskonar umræður um þjóðfræði, félagið
og önnur skemmtilegheit.

Boðið verður upp á bjór, vín og allskonar gómsætar léttar veitingar á
fundinum.

Eftir fundinn munum við svo rölta (eða taka strætó) saman á einhvern bar
(nánari upplýsingar um það koma líka fljótlega)!


Nánari upplýsingar um einstaka liði og staðfesta dagskrá verða send þegar
nær dregur.


Við vonumst til að sjá sem flesta. Þetta verður dúndur fjör!


Fyrir hönd FÞÍ,

Silja Ósk Þórðardóttir

meðstjórnandi


More information about the Gandur mailing list