[Gandur] Ný bók um Sigurð Guðmundsson málara á kynningarverði

Rósa Þorsteinsdóttir rosat at hi.is
Fri Sep 15 12:00:52 GMT 2017


Málarinn og menningarsköpun: Sigurður Guðmundsson og Kvöldfélagið 1858-1874

Í nóvember kemur út bókin Málarinn og menningarsköpun: Sigurður Guðmundsson og Kvöldfélagið 1858-1874. Í henni eru 17 ritrýndar greinar, hluti afrakstrar fimm ára rannsóknarverkefnis þar sem rýnt var í störf og áhrif Sigurðar Guðmundssonar málara og Kvöldfélagsins í Reykjavík. Bókin er rétt um 600 blaðsíður að lengd, í henni eru u.þ.b. 140 myndir, en auk þess geymir hún ítarlega heimildaskrá sem spannar rúmlega 30 blaðsíður. Þjóðminjasafn Íslands gefur bókina út (í samstarfi við bókaútgáfuna Opnu).
Bókin mun kosta kr. 9.990, en með þessu bréfi býðst þér að panta bókina fyrirfram í áskrift á niðursettu verði, kr. 6.990. Með því færðu nafnið þitt (eða annarra, ef þér sýnist svo) prentað fremst í bókinni undir fyrirsögninni „Vinir Sigurðar málara.“

Greinarnar í Málarinn og menningarsköpun bæta nýjum víddum í sýn á markvissar aðgerðir Sigurðar og Kvöldfélagsins í sköpun þjóðlegrar menningar á Íslandi sem skilgreinir ímynd þjóðarinnar enn í dag. Í henni má sjá samhengi við umræðu og pólitík í Kaupmannahöfn og eins endurómun og áhrif alþjóðlegra hreyfinga. Höfundarnir skoða áhrif þessa merkilega starfs á leikhús, þjóðsagna- og forngripasöfnun, hönnun, þjóðlega búninga, þjóðfélagslega umræðu og fleira.

Greinasafnið er fyrst og fremst framlag til sögu Sigurðar Guðmundssonar málara. Til hans má rekja upphaf Þjóðminjasafnsins, Þjóðleikhússins, Landsbókasafnsins, skaut- og kyrtilbúninga íslenskra kvenna og fleira, svo ekki sé minnst á almennt framlag hans til sjálfstæðisbaráttu Íslendinga og verndunar innlendrar menningar. En um þennan einstaka mann og áhrif hans á íslenska menningu hefur hins vegar ekki verið gefin út bók síðan stutt æviminning kom út 1954 og hefur helst til lítið sést á prenti um hann yfirleitt. Þessi bók er því vel tímabær og ætti að vekja áhuga allra sem vilja fræðast um málarann, íslenska menningu og erlend áhrif sem mótuðu þjóðina og listir hennar á seinni hluta nítjándu aldar.

Rannsóknarverkefnið var styrkt af RANNÍS og var unnið með stuðningi Þjóðminjasafnsins Íslands, Landsbókasafnsins, Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum á Íslandi og Þjóðskjalasafns Íslands (sjá vefsíðu verkefnisins https://sigurdurmalari.hi.is/). Útgáfan naut stuðnings frá Miðstöð íslenskra bókmennta.

Höfundar:

Arndís A. Árnadóttir

Edda Björnsdóttir

Eiríkur Valdimarsson

Elsa Ósk Alfreðsdóttir

Guðmundur Hálfdanarson

Karl Aspelund

María Kristjánsdóttir

Olga Holownia

Ólafur Engilbertsson

Sigurjón Baldur Hafsteinsson

Sveinn Einarsson

Sveinn Yngvi Egilsson

Terry Gunnell

Ritstjórar: Karl Aspelund og Terry Gunnell.


VINIR SIGURÐAR MÁLARA

Hafir þú áhuga á að panta bókina fyrirfram í áskrift á niðursettu verði kr. 6.990 og fá nafn þitt (eða annarra) prentað fremst í bókinni undir fyrirsögninni Vinir Sigurðar málara skaltu gera eftirfarandi:

1.  Millifæra greiðslu kr. 6.990 á sérstakan reikning Þjóðminjasafnsins: bankareikningur: 0133-05-060467, kennitala: 710269-2389.

2. Skrá fullt nafn sem birta á í bókinni í liðinn Mín skýring (skýring greiðslu).

3. Senda tilkynningu á netfangið siggisjeni at gmail.com <mailto:siggisjeni at gmail.com>
Mikilvægt er að pöntun berist fyrir 28. september nk.

Bókin verður afhent í útgáfuteiti bókarinnar (auglýst síðar) og í safnbúð Þjóðminjasafnsins eftir það.


More information about the Gandur mailing list