[Gandur] Alvöru karlmenn - Ljósmyndasýning: Kynning & leiðsögn á miðvikudaginn kl. 16-17

Valdimar Tr. Hafstein vth at hi.is
Mon Nov 6 21:42:36 GMT 2017


Sýningaropnun í Háskóla Íslands: Sæbjörg Freyja Gísladóttir þjóðfræðingur
á Flateyri opnar ljósmyndasýninguna Alvöru karlmenn núna á miðvikudaginn,
8. nóvember. Kynning á sýningunni verður kl. 16 á opnunardegi í stofu 102
í Gimli og síðan stjórnar Sæbjörg leiðsögn um sýninguna á göngum
Háskólatorgs. Þaðan liggur svo leiðin í Stúdentakjallarann. Verið öll
hjartanlega velkomin! Sjá viðburð á Facebook hér:
https://www.facebook.com/events/133392464047434/?active_tab=about

Vaskir sjómenn, vígreifir bankamenn, krúttleg lopatröll, léttfættir
séntilmenn, þrekmiklir bændasynir: Það er misjafnt hvað þykir
karlmannlegt, breytilegt eftir stað, stund og stétt. En hvernig hefur
karlmennskan þróast í tímans rás og hvernig bera menn sig karlmannlega í
dag? Þjóðfræðingurinn Sæbjörg Freyja Gísladóttir hefur rannsakað hvernig
karlmennska birtist í ljósmyndum frá árunum 1914 til 2014, hvaða
líkamsstaða þykir karlmannleg á hverjum tíma og hvernig líkamar karlmanna
endurspegla samfélagsbreytingar.

Sæbjörg safnaði og greindi um eitt þúsund ljósmyndir frá Skjalasafni
Austfirðinga og Skjalasafninu á Ísafirði frá fyrstu áratugum 20. aldar.
Hún ljósmyndaði einnig þrjátíu karlmenn sem eru búsettir á Egilsstöðum,
Reykjavík og Önundarfirði. Afrakstur þessa er ljósmyndasýningin Alvöru
karlmenn sem þegar hefur verið sýnd víða um land og ratar nú á veggi
Háskóla Íslands.

Sýningin er á vegum Námsbrautar í þjóðfræði og safnafræði við Háskóla
Íslands og Rannsóknarseturs HÍ á Ströndum - Þjóðfræðistofu

https://www.facebook.com/events/133392464047434/?active_tab=about



More information about the Gandur mailing list