[Gandur] Þetta er bara matur þegar hausinn er farinn af-fyrirlestur Önnu Bjargar

Félag þjóðfræðinga á Íslandi felagthjodfraedinga at gmail.com
Thu May 11 19:15:52 GMT 2017


Fyrirlestur Önnu Bjargar 18. maí á vegum Félags þjóðfræðinga í samstarfi
við Þjóðminjasafnið. Fyrirlesturinn er haldinn í Safnahúsinu kl. 16:00.


Félag þjóðfræðing lýkur vetrinum á tveimur skemmtilegum viðburðum,
Landsbyggðarráðstefnunni 27. maí í Borgarnesi og í næstu viku segir Anna
Björg Ingadóttir frá mastersverkefni sínu og lýkur þar með fyrirlestraröð
vetrarins.


Hvað gerir samfélag að góðu samfélagi til að búa í? Hvers vegna skiptir
staðurinn fólk svona miklu máli? Hvers vegna koma brottfluttir oft í
heimsókn? Hvers vegna verjum við okkar stað með kjafti og klóm þegar
einhver talar illa um hann? Hvers vegna megum bara við tala illa um staðinn
við aðra staðarbúa á meðan utanaðkomandi mega það ekki?

Hvers vegna kjósa tæplega 400 manns að búa í Reykhólahreppi, stóru og
víðfeðmu sveitarfélagi á sunnanverðum Vestfjörðum? Læknirinn kemur eftir
hádegi á mánudögum og þá opnar Landsbankinn útibúið sitt sem er eitt
herbergi á hreppsskrifstofunni. Þess á milli er best að þurfa hvorki lækni
né pening en þetta skipti íbúana litlu máli enda þessu vanir. Þeir voru
meira uppteknir af væntanlegri vegalögn, sauðburði eða leitum og kipptu sér
lítið upp við smámuni sem þjóðfræðinemanum fannst mikið mál.

Í þessum fyrirlestri ætlar þjóðfræðingurinn Anna Björg Ingadóttir að kynna
meistaraverkefni sitt, vefsíðuna Reykhólahreppur.com sem fjallar um
samfélagið í Reykhólahreppi. Hún flutti til Reykhóla 2014-2016 og tók
myndbandsviðtöl
við 19 einstaklinga, heimafólk, aðflutt og brottflutt til að kanna hvort og
þá hvernig þetta fólk tengdist Reykhólahreppi tilfinningaböndum umfram aðra
staði. Ásamt myndbandsviðtölum eru ljósmyndir frá hreppnum, bæði landslagi
sem og fólki við leik og störf ásamt stuttum textum sem kynna viðmælendur.

„Þegar hausinn er farinn af er þetta bara matur“ sagði bóndinn Indíana á
meðan hún hrærði víðfrægu bjúgnablönduna sína en sagði samt að uppáhalds
rollurnar hennar færu nú í moldina en ekki á diskinn.


Á vefsíðunni má einnig finna ljósmyndir og myndbönd sem geyma safn
minninga, sögur, frásagnir að ógleymdum hverfandi menningararfi eins og
bjúgnagerð, dúnhreinsun og hvernig selanetin voru riðin uppá gamla mátann.


Hlökkum til að sjá ykkur bæði 18. og 27. maí!


More information about the Gandur mailing list