[Gandur] Jólastund Félags þjóðfræðinga sunnudaginn 17. desember

Félag þjóðfræðinga á Íslandi felagthjodfraedinga at gmail.com
Sat Dec 16 23:38:13 GMT 2017


Sunnudaginn 17. desember stendur Félag þjóðfræðinga á Íslandi fyrir
notalegri jólastund í Safnahúsinu á Hverfisgötu kl. 14:00-15:00 og eru
allir velkomnir, börn og fullorðnir!

Þjóðfræðingurinn Kristín Einarsdóttir ætlar að flytja fyrir okkur
skemmtilegan jólafróðleik, erindið Jólaleikrit með hléum og útúrdúrum, auk
þess munu hljómsveitin Einbreið brú og Aldís Fjóla sjá um að næra tóneyrað.

Boðið verður upp á kaffi, djús, smákökur og mandarínur, það gerist ekki
jólalegra!

Við hlökkum til sjá ykkur sem flest!

Jólakveðja,
Félag þjóðfræðinga á Íslandi


More information about the Gandur mailing list