[Gandur] ?==?utf-8?q? Hátíðardagskrá?==?utf-8?q? Félags þjóðfræðinga?==?utf-8?q? á Íslandi

Hrefna Sigríður Bjartmarsdóttir hsb3 at hi.is
Fri Dec 16 20:27:58 GMT 2016


Því miður kemst ég ekki á sunnudaginn. Ég verð stödd í Dölunum við mína árlegu leit að jólakettinum ;) En kærar kveðjur til ykkar allra og einkum til Árna Björnssonar heiðursmeðlims félagsins. Gleðileg jól!

Hrefna S. Bjartmarsdóttir :)



Þann fimmtudagur 15 Desember 2016 23:48 GMT, skrifaði Félag þjóðfræðinga á Íslandi <felagthjodfraedinga at gmail.com>: 
 
> Góðan dag og gleðilega aðventu!
> 
> Sunnudaginn 18. desember verður blásið til skemmtilegrar hátíðardagskrár í
> lestrarsal Safnahúsins við Hverfisgötu frá klukkan 15:00 til 16:00.
> 
> Árni Björnsson, heiðursmeðlimur Félags þjóðfræðinga og þjóðháttafræðingur
> mun flytja erindi um vísuna Upp á stól og vísnasöngsveitin Vísur og Skvísur
> syngja jólin inn í hjörtu gesta.
> Boðið verður upp á kaffi, djús og piparkökur.
> 
> Allir hjartanlega velkomnir og við vonumst til að sjá sem flesta, unga sem
> aldna, þjóðfræðinga sem aðra!
> 
> Kær kveðja,
> Stjórn Félags þjóðfræðinga á Íslandi
> _______________________________________________
> Gandur mailing list
> Gandur at listar.hi.is
> http://listar.hi.is/mailman/listinfo/gandur
 
 




More information about the Gandur mailing list