[Gandur] Hátíðardagskrá Félags þjóðfræðinga á Íslandi

Félag þjóðfræðinga á Íslandi felagthjodfraedinga at gmail.com
Thu Dec 15 23:48:30 GMT 2016


Góðan dag og gleðilega aðventu!

Sunnudaginn 18. desember verður blásið til skemmtilegrar hátíðardagskrár í
lestrarsal Safnahúsins við Hverfisgötu frá klukkan 15:00 til 16:00.

Árni Björnsson, heiðursmeðlimur Félags þjóðfræðinga og þjóðháttafræðingur
mun flytja erindi um vísuna Upp á stól og vísnasöngsveitin Vísur og Skvísur
syngja jólin inn í hjörtu gesta.
Boðið verður upp á kaffi, djús og piparkökur.

Allir hjartanlega velkomnir og við vonumst til að sjá sem flesta, unga sem
aldna, þjóðfræðinga sem aðra!

Kær kveðja,
Stjórn Félags þjóðfræðinga á Íslandi


More information about the Gandur mailing list