[Gandur] Fyrirlestur Tok Thompson „Don´t feed the Trolls“

Félag þjóðfræðinga á Íslandi felagthjodfraedinga at gmail.com
Tue Oct 20 14:03:17 GMT 2015


Félag þjóðfræðinga minnir á fyrirlestur þjóðfræðingsins Tok Thompson sem
haldinn verður í Safnahúsinu, Hverfisgötu 15, fimmtudaginn 22. október
klukkan 16:00. Fyrirlesturinn ber heitið  „Don´t feed the Trolls“.

Tok Thompson er prófessor í mannfræðideildinni og yfirmaður aukagreinar í
þjóðfræði og alþýðumenningu við University of Southern California í Los
Angeles auk þess sem hann sinnir ritstjórn tímaritsins Western Folklore.
Hann kennir nú áfangana Stafrænt samfélag: Alþýðumenning á Internetinu og
Goðsagnir mannkyns við Háskóla Íslands.

Eftir fyrirlesturinn munum við rölta yfir á barinn Mikkeller & Friends
Reykjavík og ræða heimsmálin og tröll í ýmsum myndum.

Bestu kveðjur
Félag þjóðfræðinga á Íslandi


More information about the Gandur mailing list