[Gandur] Fjölskyldudagur Félags þjóðfræðing og Þjóðbrókar

Félag þjóðfræðinga á Íslandi felagthjodfraedinga at gmail.com
Wed Nov 18 20:35:28 GMT 2015


Í tilefni fjölskyldudags vilja Félag Þjóðfræðinga og Þjóðbrók bjóða
félagsmeðlimum, mökum og börnum þeirra í bíó næstkomandi laugardag í
Bæjarbíó í Hafnarfirði. Við ætlum að sjá Línu Langsokk þar sem 70 ár eru
liðinn síðan hún komst fyrst á kreik. Hér gefst kjörið tækifæri til að
rifja upp kennslustundir í efnismenningu og skoða sænsku borgarastéttina
takast á við ómenningu og villt eðli ósiðmenntuðu náttúru-stúlkunnar.

Myndin hefst klukkan 15:00 og viljum við eindregið hvetja ykkur að mæta
tímanlega.

Til þess að fá aðgöngumiða þurfið þið einfaldlega að láta merkja við ykkur
í miðasölunni þar sem listi yfir félagsmeðlimi Félags þjóðfræðinga og
Þjóðbrókar liggur.
Hlökkum til að sjá ykkur!


More information about the Gandur mailing list