[Gandur] Fornleifar á Kjalarnesi ofl.

Hrefna Sigríður Bjartmarsdóttir hsb3 at hi.is
Thu Mar 12 13:28:22 GMT 2015


Minni á fund Sögufélagsins Steina í kvöld kl. 20 á Kjalarnesi og erindi Margrétar Bjarkar Magnúsdóttir um fornleifar á Kjalarnesi.

Kær kveðja! Stjórnin
 
 
On Thursday, March 5, 2015 22:09 GMT, Hrefna Sigríður Bjartmarsdóttir <hsb3 at hi.is> wrote: 
 
> 
> Sæl verið þið! Vegna veðurs þurfti að fresta aðalfundi sögufélagsins Steina á Kjalarnesi sem auglýstur var áður. En núna er sólin farin að skína og vonumst við til að geta haldið fund þann 12. mars nk. kl. 20 í Fólkvangi á Kjalarnesi, sbr. viðhengi.
> 
> Erindi kvöldsins flytur Margrét Björk Magnúsdóttir meistaranemi í fornleifafræði við Háskóla Íslands. Yfirskrift þess er: „Fornleifar á Kjalarnesi“ og er byggt á meistaraverkefni Margrétar. Megin markmið hennar er að fá yfirsýn yfir skráðar fornleifar á Kjalarnesi með því að greina þær í minjaflokka, sem búnir voru til og hugsaðir sem yfirflokkar fyrir Skráningarstaðla fornleifa Minjastofnunnar Íslands. Í erindinu verður sagt frá helstu niðurstöðum greininganna, rætt um fornleifaskráningu og mikilvægi hennar, og fjallað um einstakar fornleifar á svæðinu. 
> 
> Kær kveðja! Stjórnin.
 
 




More information about the Gandur mailing list