[Gandur] Fornleifar á Kjalarnesi ofl.

Hrefna Sigríður Bjartmarsdóttir hsb3 at hi.is
Thu Mar 5 22:09:40 GMT 2015


Sæl verið þið! Vegna veðurs þurfti að fresta aðalfundi sögufélagsins Steina á Kjalarnesi sem auglýstur var áður. En núna er sólin farin að skína og vonumst við til að geta haldið fund þann 12. mars nk. kl. 20 í Fólkvangi á Kjalarnesi, sbr. viðhengi.

Erindi kvöldsins flytur Margrét Björk Magnúsdóttir meistaranemi í fornleifafræði við Háskóla Íslands. Yfirskrift þess er: „Fornleifar á Kjalarnesi“ og er byggt á meistaraverkefni Margrétar. Megin markmið hennar er að fá yfirsýn yfir skráðar fornleifar á Kjalarnesi með því að greina þær í minjaflokka, sem búnir voru til og hugsaðir sem yfirflokkar fyrir Skráningarstaðla fornleifa Minjastofnunnar Íslands. Í erindinu verður sagt frá helstu niðurstöðum greininganna, rætt um fornleifaskráningu og mikilvægi hennar, og fjallað um einstakar fornleifar á svæðinu. 

Kær kveðja! Stjórnin.


More information about the Gandur mailing list